Back to search

University of Iceland

Óráðgerð þungun - Hvers vegna?: Fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Algengi óráðgerðra þungana í heiminum er mikið og konur sem upplifa eina óráðgerða þungun eru líklegri til að upplifa endurteknar óráðgerðar þunganir. Mikilvægt er að þekkja þá þætti sem auka líkur kvenna á að upplifa óráðgerða þungun svo hægt sé að hjálpa þeim að koma í veg fyrir hana. Tilgangur: Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að skoða rannsóknir sem gátu svarað rannsóknarspurningunni: Af hverju verða konur þungaðar áður en þær kjósa það? Aðferð: Leitað var að rannsóknum í gagnagrunni PubMed og í heimildalistum annarra greina fyrir þessa fræðilegu samantekt. Ákveðin leitarskilyrði voru sett fram við leitina. Greinar sem voru valdar í samantektina fjölluðu um ástæður óráðgerðra þungana, voru birtar á tímabilinu 2011-2018, voru á íslensku eða ensku, voru frá ákveðnum löndum og fjölluðu um konur á barneignaraldri (15-49 ára). Niðurstöður: Niðurstöðurnar byggja á 10 rannsóknargreinum frá Bandaríkjunum og Frakklandi. Fram kom í niðurstöðum að þeir helstu þættir sem hafa áhrif á líkur kvenna á óráðgerðri þungun voru að þær nota ekki getnaðarvarnir, viðhorf þeirra til þungunar og erfið fjárhags- og félagsleg staða þeirra. Aðrir þættir sem höfðu áhrif voru ofbeldi í nánu sambandi, tegund fyrstu kynmaka og áfengis- og vímuefnanotkun. Það sem hefur hvað mest áhrif á líkur kvenna á að upplifa óráðgerða þungun var notkun þeirra á getnaðarvörnum en um þriðjungur rannsóknanna fjölluðu um það. Einnig hafði viðhorf kvenna til þungunar mikil áhrif en fjórar rannsóknir af tíu fjölluðu um það efni. Allir þessir þættir auka líkur á að konur upplifi óráðgerða þungun en mismikið. Umræður/ályktanir: Fram kom í niðurstöðum okkar að óráðgerð þungun á sér stað í vestrænum samfélögum sem bjóða upp á greitt aðgengi að getnaðarvörnum. Hjúkrunarfræðingar eru í æskilegri stöðu til að koma til móts við þennan hóp og aðstoða konur á barneignaraldri við val á getnaðarvörnum og veita þeim fræðslu um valda getnaðarvörn svo hún geti notað hana markvisst. Lykilorð: Óráðgerð þungun, getnaðarvarnir, konur á barneignaraldri

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Monika Eiðsdóttir 1997-
  • Tinna Rún Sigurðard. Scholtz 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38327
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38327

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Monika Eiðsdóttir 1997-; Tinna Rún Sigurðard. Scholtz 1996-. Óráðgerð þungun - Hvers vegna?: Fræðileg samantekt. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38327