Back to search

University of Iceland

Samfella í námi barna : samstarf milli leikskóla og grunnskóla

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í samstarf leik- og grunnskóla m.a. í því augnamiði að kanna samfellu í námi ungra barna. Athugað var hvernig grunnskólinn væri kynntur fyrir börnum í leikskóla áður en þau hæfu nám í 1.bekk. Kannaðar voru mögulegar leiðir til að efla samfellu í námi barna. Horft var til könnunaraðferðarinnar og leiksins og hvernig nýta mætti þá þætti. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð sem gaf mælanlegar og tölfræðilegar niðurstöður. Spurningalistar voru sendir út af handahófi til 29 leik- og grunnskóla og leitast var við að hafa dreifinguna sem jafnasta yfir höfuðborgarsvæðið. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 49 leik- og grunnskólakennarar á aldrinum 23 – 67 ára. Áhugavert er að 56% svarenda frá leikskólum töldu vera mjög mikið samstarf milli skólastiganna en einungis 32% svarenda frá grunnskólunum voru sama sinnis. Einnig má geta þess að enginn taldi að samstarf milli skólastiganna væri ekki til staðar. Þessar niðurstöður benda til ólíkra viðhorfa hjá svarendum um samstarf eftir því hvort þeir starfa í leik- eða grunnskóla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Eva Rós Tómasdóttir
  • Rán Árnadóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/382
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/382

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Rós Tómasdóttir; Rán Árnadóttir. Samfella í námi barna : samstarf milli leikskóla og grunnskóla. 2007. http://hdl.handle.net/1946/382