Abstract
dc:description.abstractHér er leitast við að sýna fram á rætur fyrsta boðorðsins í Biblíunni um myndbann og túlkun þess í Gamla og Nýja testamentinu. Annars vegar er sjónum beint að vægi boðorðsins fyrir samfélagið í Gamla testamentinu, hins vegar heimsfræðilegri vídd myndbannsins í Nýja testamentinu, einkum áhrifum þess á það hvernig samband veraldlegs og andlegs sviðs hefur verið skilgreint. Megininntak myndbannsins er m.a. að afbyggja eða afhelga táknmyndir alræðiskenninga. Í viðleitni til að framfylgja boðorðinu gegnir myndin mikilvægu hlutverki. Mætti orða það svo að í krafti myndarinnar séu hugmyndir leiðréttar og birtingarmyndir alræðis afbyggðar. Til þessa þáttar myndbannsins var vísað m.a. í Þýskalandi í uppgjöri við hugmyndafræði nasismans og þar á undan var það nýtt til að takast á við gjörbreyttar samfélagsaðstæður eftir fyrri heimsstyrjöld. Fulltrúar siðbótarinnar byggðu á þessari hefð sem kirkjan hafði fram að þeim tíma markað sér um hlutverk mynda og líkneskja. Marteinn Lúther setti í samræmi við hana tilbeiðslu mynda í eigin samtíð skýr mörk. Hann tengdi hlutverk kirkjulegra mynda við boðunina og útleggingu fagnaðarerindisins innan safnaðarins. Myndir og myndefni gegna tvöföldu hlutverki. Þær eru í fyrsta lagi ómetanleg tæki til fræðslu og í öðru lagi fyrir íhugun trúarinnar á hinum margbreyttu þáttum hjálpræðisins í hjálpræðissögunni. Kenningar Jóhanns Kalvíns ollu því að dregið var verulega úr notkun mynda innan veggja kirknanna og stuðlaði það að sjálfstæði myndlistarinnar utan kirkjurýmisins. Listamenn urðu að leita annarra leiða og víkka sjóndeildarhring sinn um val á myndefni. Myndlistin var ekki lengur bundin kirkjunni og þörfum hennar. Myndbannið varð þannig hluti af gagnrýninni samfélagsumræðu á Vesturlöndum. Það er ekki farvegur slíkrar umræðu, heldur í farvegi hennar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurjón Árni Eyjólfsson 1957-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37282
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37282