University of Iceland
"Góður hópur getur gert allt" : viðhorf leikskólastarfsfólks til gæða í leikskólastarfi
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf leikskólastarfsfólks til gæða í leikskólastarfi, helstu þátta sem hafa áhrif á gæði leikskólastarfs og þeirra áhrifa sem gott leikskólastarf hefur á börn og samfélagið í heild. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir til að afla gagna og var það gert með því að taka hálf opin viðtöl við fjóra leiðbeinendur og fjóra leikskólakennara. Gæði í leikskólastarfi eru talin geta haft mikil áhrif á líf barna og tækifæri þeirra til áframhaldandi náms, auk þess að geta stuðlað að auknum jöfnuði í viðkomandi samfélagi og tryggt að atvinnuhjól þess haldist gangandi. Samkvæmt rannsóknum eru helstu áhrifaþættir þegar kemur að gæðum í leikskólastarfi menntun starfsfólks, fjöldi barna á kennara, stærð húsnæðis og skipulag, námskrá og mat á starfi, en af þessum þáttum skiptir menntun starfsfólks mestu máli. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að það sem skiptir mestu máli til að tryggja gæði í leikskólastarfi er starfsmannahópurinn, menntun hans og samsetning. Það sem hefur helst áhrif á gæði leikskólastarfs er starfsandinn í hverjum leikskóla og fjárveitingar og ákvarðanir stjórnvalda sem snúa að leikskólamálum. Áhrif góðs leikskólastarfs á börn og samfélagið voru að mati viðmælenda gríðarlega mikil, annars vegar í því formi að veita börnum góðan grunn og betri tækifæri til frekari náms og hins vegar sem grunnstoð í samfélaginu sem tryggir foreldrum tækifæri til að stunda vinnu og stuðli þannig að því að hjól atvinnulífsins snúist.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Svanhvít Erla Traustadóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36847
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36847