Back to search

University of Iceland

Sjálfsmynd og mikilvægi tungumáls barna af erlendum uppruna

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin er lokaverkefni til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði. Efnistök ritgerðarinnar ákvörðuðust af áhuga höfundar á þáttum sem hafa áhrif á mótun sjálfsmyndar barna og annars sem snýr að velferð og velgengni þeirra í fjölmenningarlegu samfélagi. Stuðst er við fræðilegar heimildir og kenningar sem fjalla um sjálfsmynd, þroska barna og fjölmenningu. Markmið ritgerðarinnar er að draga saman þá þætti sem hafa áhrif á velferð barnsins út frá nánasta umhverfi þess eða skóla, fjölskyldu og félagslegum tengslum, hvernig þeir hafa svo áhrif á þróun sjálfsmyndar barna af erlendum uppruna. Leitast var eftir því að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvaða áhrif hefur viðhald heimatungumálsins fyrir sjálfsmynd barna af erlendum uppruna varðandi fjölskyldu, félagsleg tengsl og námsárangur? Niðurstaða höfundar er sú að nánasta umhverfi barnsins þurfi að halda vel utan um og styðja við barnið bæði náms- og félagslega. Heimtungumálið er grunnur að persónulegum samskiptum og tengslum barnanna við fjölskyldu og vini. Ef fjölskyldu- og félagsleg tengsl eru sterk þá eru meiri líkur á að barnið hafi sterka sjálfsmynd. Þau börn sem alast upp með sterka sjálfsmynd eru líkleg til að njóta velferðar og velgengni í námi og starfi, ásamt því að vera vel undirbúin fyrir það mótlæti sem að lífið býður af og til upp á.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svanhvít Erla Gunnarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36844
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36844

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svanhvít Erla Gunnarsdóttir 1984-. Sjálfsmynd og mikilvægi tungumáls barna af erlendum uppruna. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36844