Back to search

University of Iceland

Heimsmarkmiðin sem undirstaða kennsluefnis í myndmennt : greinargerð og verkefnasafn

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta er hluti af 10 ECTS lokaverkefni til B.Ed.-prófs með áherslu á list- og verkgreinar við Deild faggreinakennslu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Verkefnið er tvískipt og samanstendur af greinargerð og vefsíðu sem ætlað er að styðja við kennslu í myndmennt. Verkefnið er unnið út frá Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og stuðst er við grunnþætti menntunar og hæfniviðmið aðalnámskrá grunnskóla. Vefsíðan er miðuð að myndmenntakennslu í grunnskólum og inniheldur fjölbreytt verkefni. Verkefnin tengjast fjórum af sautján heimsmarkmiðum. Vefsíðan og verkefnin eru hönnuð með miðstig grunnskóla í huga og miðuð að markmiðum og hæfniviðmiðum aðalnámskrár við lok 7.bekkjar. Vefsíða og verkefnasafn eru ætluð myndmenntakennurum í grunnskólum sem vilja vinna með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hvort sem er í þemavinnu eða sem stök verkefni í kennslustund myndmenntar. Í fræðilegum hluta greinargerðarinnar er fjallað um sköpun og möguleikahugsun byggða á hugmyndum kennslufræðingsins Önnu Craft en einnig verður stuðst við fræðimennina Gardner, Freud, Winnicott og Guilford. Fjölgreindarkenning Gardners er skoðuð og þá sérstaklega út frá myndmennt. Komið er inn á grunnþætti menntunar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og rýnt í hvernig þeir tengjast myndmennt og Heimsmarkmiðunum. Vonast höfundur þessa verkefnis til þess að myndmenntakennarar nýti sér vefsíðuna og verkefnin með grunnþætti menntunar, aðalnámskrá grunnskóla og Heimsmarkmiðin að leiðarljósi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóna Þorgerður Andrésdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36774
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36774

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóna Þorgerður Andrésdóttir 1980-. Heimsmarkmiðin sem undirstaða kennsluefnis í myndmennt : greinargerð og verkefnasafn. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36774