Back to search

University of Iceland

Skólafélagsráðgjöf. Hlutverk og markmið félagsráðgjafar í grunnskólum

Abstract

dc:description.abstract

Grunnskólinn er stofnun sem skiptir miklu máli í lífi barna og því mikilvægt að innan skólans séu tiltæk fjölbreytt úrræði sem stuðla að velferð barna. Góður alhliða þroski barna er mikilvægur og getur haft áhrif á tækifæri og afdrif barna í framtíðinni. Í lögum um grunnskóla er kveðið á um rétt nemenda til stuðnings vegna tilfinningalegra-, félagslegra eða námslegra erfiðleika. Hvergi er þó getið um skyldu grunnskóla til að ráða til starfa félagsráðgjafa. Kennarar kvarta undan of miklu álagi vegna sálfélagslegs vanda nemenda og kalla eftir félagsráðgjöfum í skóla. Margir nemendur búa við bágar félagslegar aðstæður og er nauðsynlegt að skólinn búi yfir úrræðum sem styrkja stöðu þessara nemenda til að koma í veg fyrir frekari vanda seinna á lífsleiðinni. Félagsráðgjafar veita ráðgjöf og stuðning vegna sálfélagslegs vanda og eru mikilvægur hlekkur á milli skóla og annarra velferðarstofnana í samfélaginu. Þeir veita ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og kennara. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að svara rannsóknarspurningunni: Hver eru helstu hlutverk og markmið skólafélagsráðgjafa og hvernig er starfi þeirra háttað? Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að skólafélagsráðgjafar eru mikilvæg viðbót við sérfræðiþjónustu grunnskóla. Einnig eru skólafélagsráðgjafar tengiliðir skóla við heimilin sem kemur til af víðfeðmu starfssviði þeirra sem nær frá ráðgjöf til nemenda og foreldra til samvinnu við kennara og skólastjórnendur. Með því að veita nemendum sem eiga við erfiðleika að stríða eða hafa orðið fyrir áföllum viðeigandi aðstoð er hægt að koma í veg fyrir að þeir þrói með sér frekari vanda sem getur meðal annars haft neikvæð áhrif á námsframvindu þeirra. Með snemmtækri íhlutun skólafélagsráðgafa er hægt að bregðast við þegar vanda verður vart hjá barni og koma þannig í veg fyrir að hann verði illviðráðanlegur og hafi slæm áhrif á námsframvindu viðkomandi nemanda. Út frá niðurstöðunum má draga þá ályktun að nauðsynlegt sé að fjölga skólafélagsráðgjöfum við grunnskóla landsins til að tryggja velferð allra nemenda í grunnskólum landsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur Helgadóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35404
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35404

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur Helgadóttir 1997-. Skólafélagsráðgjöf. Hlutverk og markmið félagsráðgjafar í grunnskólum. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35404