Back to search

University of Iceland

Stöðvunarferli afbrota: Að fá nóg, losna undan afneitun fíknivandans og öðlast vilja til að breytast

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið með þessari eigindlegu rannsókn var að fjalla um stöðvun afbrota út frá upplifun einstaklinga sem eiga að baki brotaferil en hafa „snúið við blaðinu”. Með níu djúpviðtölum var leitast við að varpa ljósi á hvað fær fólk til að vilja breytast, hvernig það ferli fer fram og hvaða hindranir og bjargir verða á veginum. Raunin er sú að margir halda áfram í afbrotum eftir afplánun dóms og er því mikilvægt að leita lausna á því vandamáli. Með rannsókninni er leitast við að bæta þekkingu á hvaða betrunarúrræði eru líkleg til þess að styðja við stöðvunarferli einstaklinga og minnka tíðni afbrota í samfélaginu. Fyrri rannsóknir um stöðvun afbrota hafa leitt í ljós að mikilvægir áhrifaþættir í ferlinu eru stöðug atvinna, gott samband við maka, vilji til breytingar og breyting á sjálfsmynd. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að það að verða „edrú“ var megin forsenda þess að stöðva afbrot. En nær allir tengdu afbrot sín við neyslu. Til þess þurfti viljann til að breytast en hann gat fengist í gegnum hvata í kerfinu. Mikil sjálfsskoðun og sjálfsvinna lá því að baki að verða edrú, og það leiddi af sér breytta sjálfsmynd sem ekki samræmdist lengur lífi neyslu og afbrota. Til þess að móta, þróa og festa í sessi breytta sjálfsmynd þurfti jákvæð félagstengsl til að tileinka sér ný hlutverk. Kom þar inn mikilvægi stöðugar atvinnu eða náms og jákvæðra fjölskyldu- og vinatengsla fyrir stöðvunarferli afbrota.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Björk Hilmarsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35286
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35286

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Björk Hilmarsdóttir 1992-. Stöðvunarferli afbrota: Að fá nóg, losna undan afneitun fíknivandans og öðlast vilja til að breytast. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35286