University of Iceland
"Hér innanhúss hef ég allt": Upplifun stjórnenda af starfsánægju í íslenskum heildsölufyrirtækjum.
Abstract
dc:description.abstractStarf stjórnenda er mjög krefjandi og fylgir mikil ábyrgð. Það að vera stjórnandi í heildsölufyrirtæki felur í sér að afla viðskiptatengsla, auka tekjur og halda verkefnum gangandi fyrir starfsfólk. Þetta kallar á samspil á milli stjórnenda og undirmanna. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á upplifun og reynslu stjórnenda af starfi í heildsölufyrirtæki á Íslandi varðandi starfsánægju og hver ávinningurinn er. Tekin voru tíu viðtöl við stjórnendur sem starfa í heildsölu í dag sem hafa meira en fimm ára reynslu í starfi. Rannsóknin var framkvæmd með djúpviðtölum að hætti eigindlegra aðferða og studd með fyrirbærafræðilegri nálgun. Að henni lokinni komu fram fimm meginþemu. Fyrsta var starfið sem uppfyllir allar mínar væntingar, undirþema þess var ábyrgðin sem drífur mig áfram og að allir stefni í sömu átt. Annað meginþema var mikilvægi þess að ávinningur hljótist af starfinu og undirþemað að fyrirtækið væri í takt við tíma, og það er sigur ef því gengi vel. Þriðja þema var menningin sem skapaðist hér og undirþema að það væri gott að fá hvatningu og umbun, skapa tækifæri og spennandi að starfa í heildsölufyrirtæki. Fjórða meginþema var breytilegt umhverfi og undirþema vinnustress og að finna jafnvægi. Fimmta er að skapa ákveðin tækifæri til neytenda og undirþema var lækkaður kostnaður og meira úrval og að vera leiðandi á markaði. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að upplifun stjórnenda varðandi starfsánægju heildsölu var að laun þyrftu að vera fullnægjandi, samstarfsfólk skipti máli og að verkefni væru krefjandi ásamt umhverfi. Heildsölumarkaðurinn er stór og er mjög breytilegur eftir þörfum neytenda. Stjórnendur þurfa því alltaf að vera tilbúnir í breytingar. Þátttakendur töldu ávinning af starfi sínu oftast vera háðan því að afla meiri tekna fyrir fyrirtækið og mynda enn meiri viðskiptatengsl innan markaðar sem þeir störfuðu hjá. Flestir þátttakendur voru ánægðir í starfi og upplifðu að fyrirtækið hefði komið vel fram við þá og að starfið uppfyllti væntingar þeirra
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Óliver Thanh Tung Vu 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35121
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35121