Back to search

University of Iceland

"Þori ég, get ég, vil ég? Já ég þori, get og vil" : lært af því að hanna og stýra námskeiði fyrir foreldra leikskólabarna

Abstract

dc:description.abstract

Uppeldi er ekki einkamál foreldra og það er hlutverk samfélagsins að styðja við þá í þessu hlutverki. Uppeldis- og foreldrafræðsla getur verið ein leið samfélagsins til að koma til móts við foreldra. Enn sem komið er hefur starfsvettvangur fyrir uppeldis- og foreldrafræðara ekki verið mótaður hér á landi og því fáar fyrirmyndir fyrir þá sem eru að koma úr námi í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf. Tilgangur verkefnisins var að móta faglega sýn mína á það hvernig ég vil starfa í komandi framtíð og hvaða gildi ég vil hafa að leiðarljósi í starfi mínu. Markmiðið var að skoða sjálfa mig sem verðandi uppeldis- og foreldrafræðara með því að undirbúa og stýra námskeiði með foreldrum. Ég nýtti aðferðir starfendarannsókna til þess að finna svörin, sem er hagnýt aðferð þegar kemur að því að skoða og þróa eigið starf. Í því skyni safnaði ég gögnum og rýndi í þau í gegnum ferlið til þess að greina eigin starfshætti og starfskenningu. Gagnaöflun fór að mestu leyti fram með skrifum í rannsóknardagbók. En einnig nýtti ég mér upptökur þar sem ég tók upp mínar hugleiðingar og samtöl við rannsóknarvin. Svör frá þátttakendum á foreldranámskeiðinu voru nýtt til að fá fram mat þeirra á námskeiðinu og innihaldi þess. Niðurstöður sneru bæði að almennum þáttum varðandi uppeldis- og foreldrafræðslu og að starfskenningu minni. Í ljós kom að mikilvægur þáttur við undirbúning uppeldis- og foreldrafræðslu er að útbúa námskrá og kennsluáætlun. Auk þess að þörf er á að uppeldis- og foreldrafræðarar fái þjálfun eða æfingu í að veita fræðslu í náminu til að auka færni sína. Því þarf að huga að því að koma á laggirnar vettvangsnámi hér á landi, en það verður ekki hægt fyrr en uppeldis- og foreldrafræðarar hafa tekið til starfa. Niðurstöður varðandi starfskenningu mína leiddu í ljós að hún felst meðal annars í því að koma fram við foreldra af virðingu og kenna þeim leiðir til að koma fram við börn sín að virðingu. Sá lærdómur sem aðrir geta dregið af þessu verkefni er mikilvægi þess að skoða sjálfan sig í starfi og hvernig nýta má aðferðir starfendarannsókna í því ferli. Með því skapast tækifæri til ígrundunar og þjálfunar sem er undirbúningur fyrir að takast á við hlutverk sitt sem verðandi uppeldis- og foreldrafræðar. Til þess að ná að þroskast í starfi er nauðsynlegt að fá tækifæri til ígrundunar, því þurfa uppeldis- og foreldrafræðarar að hafa tök á því starfa saman.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helena Rut Sigurðardóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34566
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34566

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helena Rut Sigurðardóttir 1976-. "Þori ég, get ég, vil ég? Já ég þori, get og vil" : lært af því að hanna og stýra námskeiði fyrir foreldra leikskólabarna. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34566