University of Iceland
Himneskur dauði. Maria Callas sem tákn og áhrifavaldur í list Marinu Abramovic
Abstract
dc:description.abstractLokaritgerð þessi er unnin til MA-prófs í listfræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin fjallar um óperusöngkonuna Mariu Callas sem tákn og áhrifavald í list gjörningalistakonunnar Marinu Abramović. Fræðilegur rammi ritgerðarinnar byggist á femínisku sjónarhorni og staða konunnar sem viðfangs og þátttakanda í myndlist og óperulist er skoðuð út frá hugmyndum er varða fegurðina, hið háleita, þjáninguna, dauðann og áhorfið (the gaze). Gjörninga- og óperulistformið eru sett í menningarsögulegt samhengi og sameiginlegir þættir er varða líkamann sem verkfæri og viðfang í tímatengdri list sem þarfnast áhorfenda eru kannaðir. Marina Abramović hefur samsamað sig Mariu Callas lengi, en síðustu ár virðist sú samsömun hafa aukist og fundið sér æ ríkari stað í list hennar. Rannsóknarspurningin er: Fyrir hvað stendur Maria Callas í list Marinu Abramović? Til þess að svara spurningunni eru ýmis ólík verk eftir Marinu Abramović skoðuð og sett í listfræðilegt og ævisögulegt samhengi auk þess sem áhrif Mariu Callas á list hennar eru greind. Abramović virðist telja að Maria Callas hafi dáið úr ástarharmi og þess vegna er áhugi hennar á söngkonunni tengdur hugmyndum er varða langvarandi þjáningu og dauða. Tilgáta er sett fram um að Callas sem tákn um rómantíska þrá eftir háleitni fegurðarinnar birtist í gjörningum Abramović í formi sársauka og þjáningar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásgerður Júníusdóttir 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34368
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34368