Back to search

University of Iceland

Tónlistarsköpun í frístundastarfi barna : þróunarverkefni unnið á átta frístundaheimilum Kringlumýrar

Abstract

dc:description.abstract

Á árunum 2018 og 2019 flakkaði ég á milli átta frístundaheimila með skapandi tónlistarstarf, þar sem mikil áhersla var lögð á frjálsan spuna í raftónlist og trommuleik. Tilgangur verkefnisins var að búa til aðstæður þar sem krakkar gætu komist í frjálst flæði tónlistarsköpunar með vellíðan þátttakenda að aðalmarkmiði. Á grundvelli starfsreynslu minnar í frístundastarfi og sem tónlistarmaður, auk fræðilegu hliðarinnar úr náminu, þróaði ég verkefnið áfram og útbjó handbók út frá því, sem vonandi mun nýtast frístundastarfsfólki sem hefur hug á að koma á fót skapandi tónlistarstarfi. Aðferð hins þjónandi leiðbeinanda, með áherslu á flæði, reynslunám, frjálsa sköpun og vellíðan þátttakenda gafst vel og gerði börnum með ólíkan bakgrunn kleift að uppgötva á eigin forsendum hvernig það er að taka þátt í tónlistarsköpun. Vegna þess hve auðveldlega börnin upplifðu flæði eða hamingju í ferlinu er óhætt að segja að verkefnið hafi haft jákvæð áhrif á líðan og þroska þátttakenda en rannsóknir á sviði jákvæðrar sálfræði benda eindregið til þess að á tímabilum hamingju sé manneskjan opnari fyrir nýrri reynslu og þroska. Heila og taugarannsóknir sýna síðan framá hversu mikla sérstöðu áhrif tónlistar hefur á líkama og huga mannsins. Niðurstaðan er sú að tónlistarsköpun hafi þannig ótvírætt erindi inn í kjarna frístundastarfs barna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Markús Bjarnason 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34219
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34219

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Markús Bjarnason 1979-. Tónlistarsköpun í frístundastarfi barna : þróunarverkefni unnið á átta frístundaheimilum Kringlumýrar. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34219