University of Iceland
Fjölmenning í tónmenntastofunni : viðhorf og reynsla tónmenntakennara af fjölmenningarlegri kennslu
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hvort og þá hvernig tónmenntakennarar í íslenskum grunnskólum notast við fjölmenningarlega tónlist í kennslu. Rannsóknin byggir á viðtölum við starfandi tónmenntakennara og er athyglinni einkum beint að áherslum þeirra í kennslu, m.a. með tilliti til þess hvaðan þeir nálgast kennsluefnið, jafnframt því sem reynsla þeirra og viðhorf af fjölmenningarlegri tónlist eru krufin. Einnig er sjónum beint að ávinningi þess að nota fjölmenningarlega tónlist í tónmenntakennslu sem byggist m.a. á því að styrkja umburðarlyndi, skilning og virðingu nemenda fyrir menningarlegum og tónlistarlegum fjölbreytileika. Rannsókninni er ætlað að opna umræðu um þátt fjölmenningarlegrar tónlistarkennslu hér á landi. Hugmyndafræðin á bak við fjölmenningarlega kennslu byggist á því að öll börn hafi jafnan rétt til náms, óháð kyni, kynþætti, tungumáli, samfélagsstöðu og menningarlegum bakgrunni. Markmið hennar er einnig að börn þroski með sér meðvitund, virðingu, þekkingu og umburðarlyndi gagnvart fjölbreyttum samfélagsgerðum. Fjölmenningarleg tónlistarkennsla fagnar menningarlegum fjölbreytileika með söng, hljóðfæraleik og hlustun á tónlist frá ólíkum menningarheimum. Rannsóknin er viðtalsrannsókn framkvæmd með aðferðum fyrirbærafræðinnar (e. phenomenology). Þátttakendur eru fimm tónmenntakennarar sem valdir voru út frá markvissu hentugleikaúrtaki, en leitast var við að endurspegla stétt tónmenntakennara m.a. með tilliti til kynferðis og starfsreynslu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að viðmælendur nota fjölmenningarlega tónlist að einhverju leyti í kennslu. Þeir töldu allir mikilvægt að miðla fjölmenningarlegri tónlist og sögðu að þeir myndu vilja að gera það oftar. Nefnt var að nemendur væru alltaf áhugasamir um fjölmenningarlega tónlist ef efnið væri rétt framsett og kennari væri búinn að kynna sér það vel. Ávinning fjölmenningarlegrar tónlistarkennslu töldu þátttakendur m.a. vera að hún víkki sjóndeildarhring nemenda enda auki hún áhuga á því sem framandi er, efli umburðarlyndi, opni huga þeirra og sé til þess fallin að draga úr fordómum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Margrét Rán Þorbjörnsdóttir 2019-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34087
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34087