Back to search

University of Iceland

Hugsanaskekkjur, ályktanavillur og notkun fortalna í þjóðfélagsumræðu. Innihaldsgreining á blaðaumfjöllun um Norðlingaölduveitu.

Abstract

dc:description.abstract

Nálægt miðju Íslands eru Þjórsárver. Gróðurfarslega, landfræðilega og vistfræðilega eru Þjórsárver eitt merkilegasta svæði landsins. Áratugum saman hefur verið deilt um hvort eigi að reisa þar Norðlingaölduveitu. Í þessari rannsókn verður innihaldsgreiningu beitt til þess að rannsaka fjölmiðlaumfjöllun um Norðlingaölduveitu á árunum 2001-2006. Innihaldsgreining er rannsóknaraðferð sem byggist á því að umfjöllun er kerfisbundið skráð og flokkuð. Leitað var að orðinu Norðlingaölduveita á tímarit.is. Úrtak rannsókarinnar samanstóð af 17 atriðum úr Fréttablaðinu og 51 atriði úr Morgunblaðinu eða 68 atriðum samtals. Allur texti sem úrtak rannsóknarinnar innihélt var þaullesin með það að markmiði að túlka fjölmiðlaumræðu hans í út frá félagssálfræðilegum kenningum. Sérstaklega var leitað eftir dæmum um mann-og náttúruhverf sjónarmið, viðhorf, fortölur, réttlætingu á kerfinu og leiðsagnarreglur. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að í umræðu um Norðlingaölduveitu var fernt áberandi; markmiðadrifin hugsun, ágreiningur mannhverfra og náttúruhverfra sjónarmiða, viðhorf voru sterk og langlíf og að flakkað var á milli jaðar og kjarnaleiðar þegar fólk færði rök fyrir máli sínu. Auk þess voru fjölmörg dæmi um sokkinn kostnað og grænþvott. Einnig komu fyrir í umræðunni dæmi um aðrar leiðsagnarreglur og fortölur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pálína Axelsdóttir Njarðvík 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33442
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33442

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pálína Axelsdóttir Njarðvík 1991-. Hugsanaskekkjur, ályktanavillur og notkun fortalna í þjóðfélagsumræðu. Innihaldsgreining á blaðaumfjöllun um Norðlingaölduveitu.. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33442