Abstract
dc:description.abstractFerðamennska er í dag orðin órjúfanlegur þáttur í lífi hins hefðbundna nútímamanns og þá sérstaklega í hinum vestræna heimi. Með auknum vinsældum hafa margar gerðir ferðaþjónustu orðið til, og er aðgengileg ferðaþjónusta ein af þeim nýlegri. Aðgengileg ferðaþjónusta snýst um að veita hreyfihömluðum tækifæri til að ferðast á einfaldan og þægilegan máta, en þrátt fyrir það eru hindranirnar sem hreyfihamlaðir mæta margvíslegar, þegar kemur að því að ferðast. Þau ferðamannasvæði sem virðast hafa flestar hindranir fyrir hreyfihamlaða eru náttúru- og friðlýst svæði. Hér verður fjallað um rannsókn sem var framkvæmd á friðlýstu svæðunum Þingvöllum og Gullfossi í mars 2019, þar sem markmiðið var að athuga aðgengi fyrir hreyfihamlaða ferðamenn í hjólastól á ofangreindum svæðum og finna þær hindranir sem taldar eru koma í veg fyrir frekari uppbyggingu svæðanna. Niðurstöður leiddu í ljós að umhverfisþættir, lagaumhverfi og siðfræðilegar skoðanir eru helstu hindranirnar hvað varðar aðgengismál. Einnig komust rannsakendur að því að aðgengi svæðanna er að mörgu leyti fullnægjandi, þó svo að það sé margt sem mætti bæta. Lykilorð: Aðgengileg ferðaþjónusta, hjólastóll, hreyfihömlun, Þingvellir, aðgengi, Gullfoss, náttúruferðamennska, friðlýst svæði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Guðrún Ósk Jóhannsdóttir 1995-
- Þorbjörg Tryggvadóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33282
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33282