Abstract
dc:description.abstractVinnustaðamenning er mikilvægur þáttur í því að þróa öruggt heilbrigðiskerfi. Hún er flókið fyrirbæri sem finnst í öllum skipulagsheildum og endurspeglar meðal annars þau gildi, viðhorf, hegðun, venjur og samskiptamynstur sem einkennir þann hóp sem í skipulagsheildinni starfar. Vinnustaðamenning er í lykilhlutverki við það að hafa áhrif á og bæta frammistöðu skipulagsheilda. Hún er tengd við árangur sem hjá heilbrigðisstofnunum er meðal annars tengdur við árangur af meðferð, öryggi og gæðum þjónustu við skjólstæðinga. Markmið rannsóknarinnar er að kanna vinnustaðamenningu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða út frá líkani Denison um vinnustaðamenningu og sjá hvar helstu styrkleikar og veikleikar vinnustaðmenningarinnar liggja. Framkvæmd var megindleg rannsókn þar sem spurningalisti Denison var lagður fyrir starfsmenn stofnunarinnar í lok janúar 2019. Í rannsókninnu tóku þátt 79 starfsmenn. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að vinnustaðamenning Heilbrigðisstofnunarinnar Vestfjarða telst veik. Allar menningarvíddir bæði yfir- og undirvíddir voru undir viðmiðunareinkunn og lentu á aðgerðabili. Helstu styrkleikar vinnustaðamenningarinnar komu fram í undirvíddunum áhersla á skjólstæðinga, frelsi til athafna og lærdómur. Aðal veikleiki vinnustaðmenningarinnar reyndist í undirvíddunum breytingar og þróun mannauðs og hæfni. Ekki reyndist marktækur munur við samanburð á vinnustaðamenningu milli starfsstöðva en marktækur munur kom fram þegar starfseiningar voru bornar saman. Einnig kom fram marktækur munur þegar niðurstöður voru skoðaðar með tilliti til menntunar, aldurs og starfsaldurs. Niðurstöðurnar benda til þess að einkenni eru um lítinn sveigjanleika og skort á innri áherslum og að bæta þurfi stöðugleika.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Lóa Magnúsdóttir 1965-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32732
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32732