Back to search

University of Iceland

Frjálst flæði fjármagns?: Fjármagnshöft í góðæri

Abstract

dc:description.abstract

Í júní 2016 var Seðlabanka Íslands veitt heimild samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál til að kveða á um bindingu reiðufjár vegna nýs innstreymis erlends gjaldeyris í tengslum við fjárfestingar í ákveðnum tegundum fjármuna, einkum skráðum skuldabréfum. Samkvæmt reglum Seðlabankans þurftu fjárfestar að binda hluta fjárfestingar sinnar á vaxtalausum reikningi í Seðlabankanum í 12 mánuði. Þannig var Seðlabankanum veitt heimild til að mæla fyrir um svokallaða bindiskyldu en markmið hennar var að draga úr áhættu sem getur fylgt óhóflegu og sveiflukenndu fjármagnsinnstreymi. Óhætt er að segja að bindiskylda Seðlabankans hafi mætt mikilli andspyrnu úr atvinnulífinu þann tíma er hún var í gildi. Því var m.a. haldið fram að hún hafi brotið gegn EES-samningnum. Bindiskyldan byggði á heimild 4. mgr. 43. gr. EES-samningsins sem er bundin við örðugleika með greiðslujöfnuð eða alvarlega hættu á slíkum örðugleikum. Dómur EFTA-dómstólsins í EFTAD. mál E-3/11, EFTACR 2011, bls. 430 (Pálmi Sigmarsson gegn Seðlabanka Íslands) og framkvæmd ESA benda hins vegar til þess að skilyrði 4. mgr. 43. gr. séu rýmri en orðalag ákvæðisins gefur til kynna. Þannig er aðildarríkjum eftirlátið víðtækt svigrúm til að meta hvort skilyrðum 4. mgr. 43. gr. sé fullnægt. Beiting 4. mgr. 43. gr. er háð ýmsum þjóðhagfræðilegum stærðum og því er mögulegt að nýjar kenningar á sviði hagfræði réttlæti enn rýmri beitingu ákvæðisins. Það er hins vegar óljóst hversu langt aðildarríkin mega ganga í fyrirbyggjandi aðgerðum og áhættustjórnun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alexander Júlíusson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32687
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32687

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alexander Júlíusson 1994-. Frjálst flæði fjármagns?: Fjármagnshöft í góðæri. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32687