Back to search

University of Iceland

Birtingarmynd leikskólastarfs í rituðu efni fjölmiðla

Abstract

dc:description.abstract

Leikskólar gegna stóru hlutverki í nútímasamfélagi og það lætur nærri að öll börn á Íslandi sæki leikskóla áður en grunnskólaganga þeirra hefst. Að leikskólastarfi standa hópar og einstaklingar sem eiga ólíka aðkomu að þessum mikilvægu stofnunum, svokallaðir hagsmunaaðilar. Málefni leikskóla hafa verið talsvert til umfjöllunar í fjölmiðlum á undanförnum misserum. Þar er dregnar upp myndir af leikskólastarfi og hlutverki þeirra út frá ólíkum sjónarhornum. Þessari ritgerð er ætlað að greina umfjöllun ritaðra frétta um málefni leikskóla og varpa ljósi á birtingarmynd leikskólastarfs í fjölmiðlum, að hvaða hlutverki leikskóla umfjöllun snýr og birtingu viðhorfa hagsmunaaðila. Rannsóknaraðferðin er eigindleg og byggir á þemagreiningu á umfjöllun þriggja stærstu íslensku dagblaðanna og þriggja stærstu veffréttamiðlanna þar sem orðið leikskóli kemur fyrir. Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að hagsmunaaðilar virðast deila því viðhorfi að leikskólar gegni mikilvægu hlutverki í samfélaginu og þá gildir einu hvort um er að ræða menntunarlegt eða efnahagslegt hlutverk. Hlutverk leikskóla varðandi félagslegt réttlæti kemur lítið sem ekkert fram í umfjöllun fréttamiðlanna. Við fyrstu sýn virðist fréttaumfjöllun um leikskóla talsvert snúa að þeim áskorunum sem leikskólar takast á við í starfsumhverfi sínu. Umræða um manneklu og álag á starfsfólk er fyrirferðarmikil á því tímabili sem er til skoðunar. Í tengslum við þessa umræðu ber einnig nokkuð á umræðu um laun þeirra sem starfa í leikskólum og ímynd starfs leikskólakennara sem þykir ekki nógu góð. Þá er einnig talsvert rætt um þá fjármuni sem leikskólar hafa yfir að ráða og þykja ekki miklir. Dregin er upp heldur dökk mynd viðhaldi húsnæðis og leiksvæða. Leikskólinn er sagður gegna mikilvægu hlutverki í þjónustu við fjölskyldur og einnig er þætti leikskóla í árangri Íslendinga hvað varðar jafna stöðu kynja á vinnumarkaði gefinn talsverður gaumur. Greinar sem snúa að fagstarfi leikskóla birta jákvæða og metnaðarfulla mynd af starfinu. Von mín er að rannsóknin sýni að almennt eru viðhorf til mikilvægis leikskólastarfs jákvæð þó að umræða um hana í fjölmiðlum snúist oftar en ekki um annað en fagstarf leikskólanna. Ég vona einnig að niðurstöður verði einhverjum hagsmunaaðila leikskólanna hvatning til að snúa umræðu um leikskólamál meira að meginstarfsemi þeirra, hlutverki og ábyrgð á menntun og uppeldi yngstu barnanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árný Steindóra Steindórsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32426
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32426

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árný Steindóra Steindórsdóttir 1970-. Birtingarmynd leikskólastarfs í rituðu efni fjölmiðla. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32426