Back to search

University of Iceland

„Samfélagsmiðlar...væri besta leiðin til að ná til sem flestra“. Reynsla nemenda af náms- og starfsfræðslu og sýn þeirra á nýtingu samfélagsmiðla við slíka fræðslu

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt, annars vegar að kanna upplifun og reynslu þátttakenda af náms- og starfsfræðslu og hins vegar viðhorf þeirra á notkun samfélagsmiðla sem upplýsingaveitu um nám og störf. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við sex þátttakendur á aldrinum 18-19 ára sem eru á lokaári sínu í framhaldsskóla. Þátttakendur voru bæði búsettir á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að viðmælendur höfðu litla reynslu af náms- og starfsfræðslu í grunn- og framhaldsskóla. Upplifun þeirra af náms- og starfsfræðslu fólst aðallega í vettvangsheimsóknum og námskynningum. Misjafnt var eftir viðmælendum hvort upplifun þeirra af náms- og starfsfræðslu hafi verið gagnleg eður ei. Allir viðmælendur litu sem svo á að það væri góð hugmynd að nýta samfélagsmiðla við náms- og starfsfræðslu þar sem að nú til dags væri allt aðgengilegt á internetinu og á samfélagsmiðlum. Niðurstaðan er sú að nemendur fá litla sem enga náms- og starfsfræðslu sem bendir til þess að enn í dag er óvissa í samfélaginu varðandi gagnsemi hennar. Viðmælendur töldu að það væri hentug leið að nýta samfélagsmiðla til þess að ná betur til ungmenna. Því er mikilvægt að nýta sér þekkingu innan náms- og starfsráðgjafarfræða um upplýsingamiðlun til einstaklinga í gegnum samfélagsmiðla. Vonast er til að rannsóknin geti gefið innsýn hvernig hægt er að auka upplýsingaflæði til nemenda um náms- og starfstækifæri.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hildur Mist L. Pálmarsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32368
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32368

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hildur Mist L. Pálmarsdóttir 1992-. „Samfélagsmiðlar...væri besta leiðin til að ná til sem flestra“. Reynsla nemenda af náms- og starfsfræðslu og sýn þeirra á nýtingu samfélagsmiðla við slíka fræðslu. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32368