Back to search

University of Iceland

"Það er fyndið hvernig tófan sest að í kollinum á manni": Um menn og refi á Vestfjörðum

Abstract

dc:description.abstract

Menn og heimskautarefir (Vulpes lagopus) á Íslandi hafa lengi átt flókin samskipti. Refir voru veiddir allt frá landnámi en ekki var það fyrr en á miðri 20. öld sem reynt var að útrýma þeim ásamt minknum samkvæmt nýjum lögum. Viðsnúningur þessara laga rétt fyrir byrjun 21. aldar gæti leitt mann til að halda að þar hefði orðið grundvallar hugarfarsbreyting á því hvernig fólk hugsar um refi; til dæmis að fólk hafi haft óbeit á refum áður fyrr en síðar farið að líta þá öðrum augum. Hinsvegar kemur í ljós að myndin er auðvitað ekki svo einföld. Ekki er mögulegt í þessarri rannsókn að rekja samband alls fólks við refi, en gerð er tilraun til þess að fá almenna mynd af sambandi fólks sem kynnist refum í sínu daglega lífi, í gegnum veiði og landbúnað. Þar kemur í ljós að hugur þess til tófunnar er ekki óáþekkur því sem virðist hafa verið fyrr á 20. öldinni og vekur það ýmsar áhugaverðar spurningar um persónugervingu dýra, skilgreiningu meindýra og hvernig haga skuli veiði í nútímasamfélagi. Tekin voru viðtöl við tíu einstaklinga sem eiga reglubundin samskipti við refi í sínu nánasta umhverfi, gjarnan í gegnum starf sitt sem skotveiðimenn, æðarbændur eða sauðfjárbændur. Auk þess að rannsaka efnið í gegnum hálf-stöðluð viðtöl er einnig gerð tilraun til þess að rekja í stuttu máli sögu samskipta manna við refi í gegnum ýmis lög, veiðiaðferðir og líffræðilegar rannsóknir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sebastían Oddný Arnarson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32127
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32127

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sebastían Oddný Arnarson 1994-. "Það er fyndið hvernig tófan sest að í kollinum á manni": Um menn og refi á Vestfjörðum. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32127