University of Iceland
Viðskiptaþjónusta íslensku sendiskrifstofanna: Upplifun íslenskra fyrirtækja
Abstract
dc:description.abstractÞessi ritgerð fjallar um upplifun íslenskra fyrirtækja á viðskiptaþjónustu íslensku sendiskrifstofanna en markmiðið með henni var að svara rannsóknarspurningunni um hver væri upplifun íslenskra fyrirtækja á þjónustunni. Gerð var rannsókn sem var unnin með eigindlegri rannsóknaraðferð og hálfstöðluð viðtöl tekin við fulltrúa tíu fyrirtækja sem höfðu reynslu af þjónustunni. Viðtalsrammi var hafður til hliðsjónar. Rannsóknargögnin voru unnin samkvæmt grundaðri kenningu, skipt upp í þemu og síðan kóða. Það gerði rannsakanda kleift að öðlast skilning á upplifun viðmælenda og svara þannig rannsóknarspurningunni. Viðmælendur komu úr tveimur geirum, matvælageiranum og lista- og menningargeiranum. Niðurstöðurnar voru þær að almennt séð var upplifun viðmælenda á viðskiptaþjónustunni jákvæð. Fyrir flesta viðmælendur var aðstaðan mikilvægur kostur við þjónustuna, þ.e. það að geta haldið móttökur og aðra viðburði í samstarfi við sendiskrifstofurnar, og þá virðist sú virðing sem er oft í kringum sendiráð og sendiherra erlendis spila mikilvægt hlutverk. Einnig var talað um mikilvægi þjónustunnar þegar það kemur að ráðgjöf og aðstoð við að komast inn á nýja markaði. Hreyfing starfsfólks á milli starfstöðva var nefndur af nokkrum viðmælendum sem ákveðinn veikleiki á þjónustunni og þá var einnig talað um að áhugi starfsfólks móti stundum þjónustuna. Jafnframt virðist það að nýta þjónustuna geta styrkt tengslanet fyrirtækis og sumir höfðu séð bein jákvæð áhrif á árangur. Niðurstöðurnar eiga bæði erindi við utanríkisþjónustuna og þá sem henni sinna, þá sérstaklega viðskiptaþjónustunni, en einnig fyrirtæki sem íhuga að nýta sér viðskiptaþjónustuna. Þó það sé ekki ætlunin með rannsókninni að alhæfa út frá niðurstöðunum er það von rannsakanda að hún muni nýtast ofangreindum hagsmunaaðilum og mögulega styrkja þjónustuna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Auður Albertsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31746
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31746