Back to search

University of Iceland

Er ósýnilegi maðurinn hættur að vinna? : Um verksvið og sögu bókmenntaritstjórans

Abstract

dc:description.abstract

Með tilkomu faglegrar bókaútgáfu á tuttugustu öld verður starf bókmenntaritstjórans til og felst í því að búa texta til útgáfu í samvinnu við höfund hans. Fjölmörg dæmi sýna að aðkoma ritstjóra getur haft afgerandi áhrif á útgefna bók, allt frá inntaki hennar til stíls og stafsetningar, einnig þætti sem okkur er tamt að líta á sem höfundareinkenni og teljum til bókmenntalegrar sköpunar. Í þessari ritgerð er starf bókmenntaritstjórans til umfjöllunar með hliðsjón af ólíkum kenningum um höfundarhugtakið og þróun þess, og greiningu franska félagsfræðingsins Pierres Bourdieu á sviði menningarlegrar framleiðslu og menningarlegu auðmagni. Grafist er fyrir um sögu starfsins, alþjóðlega og hér á landi, og vinnubrögðum ritstjórans lýst eins og þau birtist í ýmiss konar leiðbeiningarritum um bókmenntaritstjórn og frásögnum ritstjóra og höfunda frá ýmsum tímum. Fjallað er um þögnina sem umlykur ritstjórastarfið, óskoruð yfirráð höfundar yfir texta sínum, aukna tilhneigingu til að gera ritstjóra ábyrgan fyrir þeim bókum sem hann hefur unnið við og umræðu sem farið hefur vaxandi á undanförnum árum um að ritstjórn á bókum fari nú hnignandi. Reifaðar eru skoðanir fræðimanna sem vilja að auknu kastljósi sé beint að störfum ritstjórans og kjósa að líta á sköpun bókmenntaverka upp að einhverju marki sem samstarf, og andsvör bæði höfunda og ritstjóra við þeim kröfum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigþrúður Gunnarsdóttir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31702
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31702

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigþrúður Gunnarsdóttir 1971-. Er ósýnilegi maðurinn hættur að vinna? : Um verksvið og sögu bókmenntaritstjórans. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31702