Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið þessa verkefnis er að skoða notagildi hlutverkaleikja í kennslu. Einnig vakti fyrir mér að búa til hlutverkaleiki sem einfalt og þægilegt væri fyrir kennara að grípa til og nota í kennslu, eða nota til innblásturs við eigin hlutverkaleikjagerð. Þar sem ég er sagnfræðingur í grunninn og hlutverkaspilari í frístundum þá bera leikirnir keim af þessu tvennu. Ég álít mikilvægt að hafa kennslu skemmtilega og áhugaverða þar sem ég held að nám beri alltaf mestan árangur fylgi því einhver ánægja. Leikir eru mannkyninu eiginlegir og því nærtækt að nota aðferðir þeim tengdar við kennslu námsefnis. Ritgerðin skiptist í fræðilegan kafla þar sem fjallað er um leiki, hlutverkaleiki og leiklist í kennslu með samantekt. Þar verða nefndir til sögunnar ýmsir af helstu áhrifavöldum í uppeldis og menntunarfræðum í gegnum tíðina. Á m.a. er rætt um hugmyndir Platóns um kennslu, farið er örstutt í hugmyndir Locke, Kant, Fröbels, Vycotskys og Piaget ásamt fleirum sem ég álít mikilvæga áhrifavalda innan fræðanna. Markmið mitt er að sýna fram á að tenging á milli náms og leikja er ekki ný af nálinni. Þar á eftir fylgja almennar kennsluleiðbeiningar fyrir hlutverkaleiki og nokkurs konar leikjabanki með hlutverkaleikjum af ýmsu tagi. Umræður og lokaorð fylgja í kjölfarið. Í viðauka fylgja einnig hugmyndir að matsaðferðum sem hægt er að nota þegar um hlutverkaleiki er að ræða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Guðrún Guðjónsdóttir 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31675
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31675