Back to search

University of Iceland

"Kennarinn stjórnar hér í leikskólanum af því hann er stærstur" : upplifun leikskólabarna af lýðræðislegri þátttöku þeirra í hópastarfi

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn hafði það að markmiði að varpa ljósi á upplifun fjögurra-fimm ára barna á lýðræðislegri þátttöku þeirra í hópastarfi í einum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur með verkefninu er að auka skilning á mikilvægi þess að börn fái að tjá sig um málefni sem varða þau í daglegu leikskólastarfi. Skoðað var hver tilgangur hópastarfsins var og hvert væri hlutverk kennarans að mati barnanna og einnig hvernig börnin myndu vilja hafa hópastarfið. Fræðilegur bakgrunnur verkefnisins tengist rannsóknum á þátttöku barna og því að þau fái að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Komið er inn á hugmyndir fræðimanna um lýðræði og þátttöku barna í tengslum við síðtímahugmyndir um nám. Samkvæmt þeim eru börn sérfræðingar í eigin lífi og fullfær um að koma sínum viðhorfum á framfæri. Þau eiga jafnframt rétt á að vera virkir þátttakendur í lýðræðis samfélagi. Rannsóknin var eigindleg þar sem gagna var aflað með vettvangsathugun og rýnihópaviðtölum við börnin. Rýnt var í vettvangsnótur og teikningar barnanna í tengslum við hópastarfið. Ásamt því að greina og skoða það sem kom fram í viðtölunum við börnin þar sem þau koma á framfæri sínum viðhorfum til hópastarfsins. Helstu niðurstöður benda til þess börnin upplifi hópastarfið sem vettvang þar sem þau eru að æfa ákveðna færni með því að vinna að ýmsum verkefnum. Þeirra upplifun er að leikskólakennarinn stjórni og að hann ráði að mestu þeim viðfangsefnum sem boðið er upp á í hópastarfstímum. Það sem hægt er að lesa úr vettvangsathugunum og viðtölum er að börnunum langi að hafa meira um það að segja hvað þau taka sér fyrir hendur í hópastarfi leikskólans. Niðurstöðurnar sýna einnig að það er mikilvægt að gefa börnum tækifæri til að tjá sig um það sem fer fram í daglegu starfi leikskólans. Það gefur kennurum færi á að rýna í skipulag og viðfangsefni hópastarfs leikskólans með það að leiðarljósi að hlusta eftir sjónarmiðum barna og til að koma til móts við þau í verkefnum hópastarfsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þóranna Sigurbjörg Sverrisdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31584
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31584

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þóranna Sigurbjörg Sverrisdóttir 1964-. "Kennarinn stjórnar hér í leikskólanum af því hann er stærstur" : upplifun leikskólabarna af lýðræðislegri þátttöku þeirra í hópastarfi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31584