Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á stöðu heimanáms í stærðfræði á miðstigi grunnskóla, hvernig það er framkvæmt, viðhorfi kennara og foreldra til þess, foreldrasamstarf í tengslum við það og hvernig tekið er tillit til þarfa einstakra nemenda við heimanám í stærðfræði. Þátttakendur í rannsókninni voru kennarar sem kenndu stærðfræði á miðstigi í fimm skólum í sama sveitarfélagi og forráðamenn nemenda þeirra. Gagna var aflað með spurningalistum, með viðtölum við kennara og einnig var kannað hvaða upplýsingar um heimanám eru aðgengilegar á heimasíðum skólanna. Við greiningu gagna var stuðst við innlendar og erlendar rannsóknir um heimanám og stærðfræðinám og -kennslu til þess að varpa ljósi á niðurstöður rannsóknarinnar. Einnig var tekið mið af umfjöllun um heimanám í aðalnámskrá grunnskóla. Sumir rannsakendur telja það hafa jákvæð áhrif á nám nemenda að fá heimaverkefni í stærðfræði en aðrir telja það hafa neikvæð áhrif á viðhorf þeirra til stærðfræði og sjálfsmynd sem stærðfræðinemendur. Á heimasíðum grunnskólanna fimm sem þátt tóku í rannsókninni kemur fram að einungis þrír af þeim hafa mótað sér stefnu um heimanám. Niðurstöður spurningakönnunar leiddu í ljós að meirihluti kennara sem tóku þátt setur heimaverkefni fyrir í stærðfræði. Meirihluti foreldra og kennara er hlynntur heimanámi í stærðfræði en forsendur barna til náms og sá tími sem fer í heimanámið hefur áhrif á viðhorf foreldra. Einnig hefur það áhrif á viðhorf foreldra hvort þeir telja sig færa um að aðstoða börn sín við heimanámið. Fram kemur í niðurstöðum að við skipulag heimanáms taka kennarar að einhverju leyti tillit til ólíkra þarfa nemenda og forsenda þeirra til náms. Það virðist þó vera á ábyrgð kennara hvort nemendur sem þurfa sérstaka aðstoð við heimanám fái hana. Foreldrasamtarf um heimanám var kannað og kemur fram, bæði í svörum kennara og foreldra, að samskiptin eru oftast að frumkvæði skóla. Mikill meirihluti foreldra telur sig ekki hafa nein áhrif á hvers konar heimanám er sett fyrir í stærðfræði. Niðurstaða rannsóknarinnar er að foreldrasamstarf um heimanám í stærðfræði byggist ekki á raunverulegu samráði á milli skóla og foreldra heldur er heimanám ákveðið af kennurum að mestu einhliða. Þetta samræmist ekki þeim viðmiðum sem sett eru fram í aðalnámskrá grunnskóla frá 2013 þar sem fram kemur að foreldrar beri ábyrgð á að nemendur vinni þau heimverkefni sem skóli og foreldrar hvers barns hafi orðið ásátt um.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Heiða Björg Árnadóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31580
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31580