University of Iceland
Hagsveiflan sem endaði ekki illa: Þróun hagvaxtar og helstu hagþátta síðan árið 2010
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar ritgerðar er að greina núverandi hagsveiflu og skoða þróun helstu hagþátta með sérstöku tilliti til einkaneyslu. Frá árinu 2010 hefur verið mikil uppsveifla í efnahag Íslands. Lán hafa verið greidd niður og endurfjármögnuð á betri kjörum. Hrein erlend þjóðarstaða varð nýlega jákvæð í fyrsta sinn síðan mælingar hófust og ekki er talin ástæða til að efla gjaldeyrisforðann meira. Aukning einkaneyslu er svipuð og í síðustu uppsveiflu og hefur verið drifkraftur í hagvexti. Gjaldeyristekjur vega á móti vöruviðskiptahallanum og núverandi uppsveifla er ekki byggð á auknum skuldum. Ríkisstjórnin virðist ekki ætla stemma stigu við þenslu sem ætti þó að vera í lagi ef útgjaldaaukningu er ráðstafað í arðbærar fjárfestingar. Hugsanlega mætti marka skýrari stefnu við beitingu þjóðhagsvarúðartækja við aðhald á íbúðaverðsþróun. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur áhættu vera að aukast og að heimurinn sé orðinn samstilltari. Ísland er næmt fyrir smitáhrifum og niðursveiflan mun að öllum líkindum koma. Hlutverk hagstjórnenda er því að koma í veg fyrir að hún valdi alvarlegum afleiðingum. Staða Íslands er sterk núna en umhugsunarefni er hvort slaka eigi á reglum og fá tímabundið öflugra efnahagslíf sem gæti þá kostað alvarlegri niðursveiflu seinna. Með langtímahugsun er hægt að stuðla að því að hagsveiflan endi ekki illa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/30347
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/30347