Back to search

University of Iceland

Fortölur og undanlátssemi

Abstract

dc:description.abstract

Umfjöllun þessi snýr annars vegar að því að kanna hvaða þættir í fari einstaklinga gera fortölur þeirra áhrifaríkar og hins vegar hvaða þættir í fari einstaklinga kalla fram undanlátssemi hjá öðrum. Rannsóknir benda til þess að þeir þættir í fari einstaklinga sem ýta undir áhrifaríkar fortölur megi annars vegar rekja til yfirborðslegra þátta þess sem beitir fortölunum og hins vegar til þeirra eiginleika sem hlustandinn telur þann sem beitir fortölum hafa. Rekja má áhrifaríkar fortölur einnig til innihalds skilaboða og einkenni raddar þess sem beitir fortölunum, ásamt tilfinningaástandi hlustandans. Rannsóknir virðast einnig benda til þess að þeir þættir í fari einstaklinga sem stuðla að undanlátssemi í öðrum megi rekja til atferlis beiðandans, þar sem beiðandinn ráðskast með ýmsa þætti er snúa að tilhneigingum mannsins. Til að mynda það að ráðskast með tilhneigingu mannsins til að vilja endurgjalda greiða, ásamt því að ráðskast með tilhneigingu mannsins er snýr að félagslegri gildisgjöf, viðbrögðum við lögmætu valdi, áhrifum gagnkvæmnisreglunnar og innri samkvæmni mannsins. Auk áðurnefndra þátta virðist hrós, ásamt því að láta beiðni líta út fyrir að vera hluti af sameiginlegu markmiði, auka líkur á undanlátssemi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Benedikt Sigurðsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30173
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30173

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Benedikt Sigurðsson 1989-. Fortölur og undanlátssemi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30173