Back to search

University of Iceland

Beiting notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar sem stjórntækis í íslensku samfélagi

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á hvernig notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er nýtt sem stjórntæki í íslensku samfélagi. Meginrannsóknarspurningin sneri að því hvernig notendastýrðri persónulegri aðstoð væri beitt sem stjórntæki hjá sveitarfélögum á Íslandi. Rannsóknin er eigindleg og byggir á tvenns konar gögnum; annars vegar fræðilegum heimildum, lögum og samningum og hins vegar einstaklingsviðtölum við starfsmenn sveitarfélaga sem koma að málefnum fatlaðs fólks. Gögn rannsóknarinnar voru skoðuð út frá bók Lesters M. Salamons um stjórntæki stjórnvalda. Rannsóknin sýnir að það hafa komið upp áskoranir við innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar hjá sveitarfélögum á Íslandi. Aftur á móti sýnir hún einnig fram á að það eru kostir við beitingu NPA hjá sveitarfélögum. Helsti kostur NPA samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar var aukning á lífsgæðum notenda þess. Áskoranir sem hafa komið upp eru til að mynda erfiðleikar við að finna starfsfólk auk þess sem það getur reynst notendum flókið að halda utan um starfsmanna- og launamál. Samkvæmt viðmælendum rannsóknarinnar hentar NPA því ekki fyrir alla. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að þörf sé á skýrari verkferlum og ramma af hálfu ríkisins, þannig að samræmis gæti á milli sveitarfélaga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Venný Hönnudóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29973
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29973

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Venný Hönnudóttir 1991-. Beiting notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar sem stjórntækis í íslensku samfélagi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29973