Back to search

University of Iceland

Nægir borð, stóll, net og kaffi? Fjarnám á háskólastigi á Austurlandi

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er um eigindlega rannsókn sem gerð var um upplýsingamiðlun og upplýsingaöflun um háskólanám á Austurlandi. Skoðað var hvernig upplifun þátttakenda er að aðgengi að upplýsingum um nám og hvað verðandi fjarnemar í háskóla telja sig þurfa að vita áður en ákvörðun um að hefja nám er tekin. Tekin voru viðtöl við átta konur sem allar hyggja á háskólanám í náinni framtíð. Tilgangurinn er að varpa ljósi á með hvaða hætti fólk aflar sér upplýsinga. Hvaða leiðir fer fólk í upplýsingaleit og hvaða þætti má bæta í upplýsingagjöf til verðandi háskólanema. Einnig verður skoðað hvað veldur því að fólk sem langar í nám, dregur það að byrja. Samkvæmt niðurstöðum þarf að bæta upplýsingagjöf til verðandi háskólanema. Að hefja háskólanám er stór og mikil ákvörðun fyrir fólk sem er komið með miklar skuldbindingar, oft börn og og jafnvel búið að festa kaup á húsnæði. Fyrirkomulag á námslotum er flestum ofarlega í huga varðandi fjarnám. Mikilvægi þeirra og kostnaður þeim tengdum, til dæmis gisting og ferðakostnaður. Auk þess vinnutap á meðan viðkomandi er í skólanum. Það kom fram að fólk treystir ekki öllum upplýsingum sem það finnur á netinu og finnst þær ekki fullnægjandi. Mannlegi þátturinn, að tala við aðra um námsgreinar og námsframvindu er flestum nauðsynlegur við ákvarðanatöku varðandi fjarnám á háskólastigi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Gunnarsdóttir Michelsen 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29906
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29906

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Gunnarsdóttir Michelsen 1974-. Nægir borð, stóll, net og kaffi? Fjarnám á háskólastigi á Austurlandi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29906