Back to search

University of Iceland

"Það væri bara frábært að vita hvað kom út úr því" Hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar í miðlægri stjórnsýslu og starfshópar tengdum þeim

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er leitast við að varpa ljósi á markmið, hlutverk og árangur af störfum starfshópa sem voru settir á laggirnar og skipaðir voru stjórnendum og starfsmönnum í tengslum við hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar sem hófust í lok árs 2015 og er ekki enn lokið. Starfshóparnir fengu það verkefni að leita tækifæra til hagræðingar og gera tillögur að breytingum. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvaða aðferðum var beitt við skipulagningu verkefnisins og hvort niðurstöður hópastarfsins hafi skilað sér í væntri hagræðingu. Helstu niðurstöður eru þær að kynning á þörf og mikilvægi hagræðingaraðgerðanna hafi ekki verið gerð með sannfærandi hætti. Nokkuð skorti einnig á áætlun og stefnu um væntan árangur af starfi starfshópanna. Allir starfshópar sem rannsóknin tók til skiluðu af sér fjölda tillagna og viðmælendur voru ánægðir með niðurstöðu þeirra vinnu en vissu ekki hvað úr henni varð í framhaldi. Þeim hefur ekki verið kynnt niðurstaðan og til hvaða aðgerða verði gripið ef einhverra. Þá kom í ljós að þrátt fyrir mikið álag og tímaskort voru viðmælendur ánægðir með þátttökuna í starfshópunum en afmarka þarf betur verkefnið, áfangaskipta því og taka í styttri sprettum. Huga mætti að því að taka upp aðrar aðferðir við verkefni sem þetta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kolbrún Jónatansdóttir 1957-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29374
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29374

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kolbrún Jónatansdóttir 1957-. "Það væri bara frábært að vita hvað kom út úr því" Hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborgar í miðlægri stjórnsýslu og starfshópar tengdum þeim. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29374