Back to search

University of Iceland

Í fylgd hins dökkva hrafns. Hrafnar í norrænni goðafræði og trú

Abstract

dc:description.abstract

Fyrirliggjandi ritgerð er ætluð til þess að grannskoða hlutverk hrafna í norrænni goðafræði og þá sérstaklega kanna sambandið á milli þeirra og Óðins. Reynt er að leita svara við spurningu um hvort hrafnar séu óaðskiljanlega tengdir Óðni eða ef þeir komi fram sem sjálfstætt goðmagn. Tekist er á við rannsóknina úr tveimur áttum: Annars vegar eru greindar norrænar fornbókmenntir og fornleifar norrænu og germönsku járn- og víkingaaldarinnar hins vegar. Fyrst er fjallað um goðafræðilega hlið hrafna sem birtist í eddukvæðum, ritum Snorra Sturlusonar, dróttkvæðum og í þjóðsögulegri frásögn í Morkinskinnu. Svo er litið á samband hrafna við trúariðkun og hlutverk þeirra sem tákn í konungasögum, Landnámabók og Íslendingasögum. Loks er sjónum beint að fornleifafundum sem sýna, eða eru taldir sýna, hrafna, s.s. á veggteppum, steinristum, styttum, brjóstnálum, myntum og öðrum afurðum myntsláttu. Í niðurstöðum er bent á helstu kenningar fræðimanna um eðli hrafna í norrænni goðafræði og lögð áhersla á fjölbreytni, mótsagnir og brotakennda arfsögn frumheimilda. Niðurstaðan er sú að hlutverk hrafna virðist vera fjölbreyttara en í kenningum flestra fræðimanna hingað til og að hrafnar eru ekki bara tengdir Óðni heldur einnig valkyrjum og e.t.v. öðru goðmagni. Þar að auki geta hrafnar einnig sinnt yfirnáttúrulega hlutverki sínu óháð öðru goðmagni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lanz, Nicolai Gabriel, 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28903
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28903

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lanz, Nicolai Gabriel, 1986-. Í fylgd hins dökkva hrafns. Hrafnar í norrænni goðafræði og trú. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28903