Back to search

University of Iceland

Tölusamræmi á milli sagna og nefnifallsandlaga í íslensku

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lögð fram til MA-prófs í almennum málvísindum á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Rannsóknarefni ritgerðarinnar er tölusamræmi á milli sagna og nefnifallsandlaga. Rannsóknarspurning þessarar ritgerðar er eftirfarandi: er hægt að finna einhverjar vísbendingar um það að reglan um tölusamræmi á milli sagnar og nefnifallsandlags sé hluti af málkunnáttu íslenskra málhafa? Notast er við sjálfstýrðar lestrarrannsóknir og dómapróf til að svara þessari spurningu. Í kafla 1 er fræðileg umfjöllun um nefnifallsandlög. Útskýrt er hvernig þau birtast í íslensku ásamt því að segja frá niðurstöðum Tilbrigðaverkefnisins þar sem tölusamræmi við nefnifallsandlög var rannsakað. Í kafla 2 er umfjöllun um rannsóknaraðferðina sem notuð í rannsókninni sem fjallað er um í þessari ritgerð (þ.e. sjálfstýrð lestrarrannsókn). Útskýrt er út á hvað það gengur að framkvæma sjálfstýrða lestrarrannsókn ásamt því að fara yfir atriði sem gott er að hafa í huga við hönnun á sjálfstýrðri lestrarrannsókn og atriði sem gott er að hafa í huga við úrvinnslu á gögnum úr sjálfstýrðri lestrarrannsókn. Í kafla 3 er sagt frá forkönnun sem framkvæmd var til að athuga hvort hægt væri að fá marktækar niðurstöður úr því að rannsaka tölusamræmi við nefnifallsandlög með sjálfstýrðri lestrarrannsókn. Þá er einnig farið yfir gallana við forkönnunina svo hægt sé að hanna betri aðalkönnun. Fjallað er um aðalkönnunina í kafla 4. Aðalkönnunin er uppfærð útgáfa af forkönnuninni. Þar er sagt frá sjálfstýrðri lestrarkönnun og dómaprófi sem framkvæmd voru til að svara rannsóknarspurningunni. Í lokin er gerð samantekt á helstu atriðunum sem farið var yfir í ritgerðinni ásamt því að setja fram lokaniðurstöðu ritgerðarinnar. Svarið við rannsóknarspurningunni er já.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarni Barkarson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28815
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28815

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarni Barkarson 1990-. Tölusamræmi á milli sagna og nefnifallsandlaga í íslensku. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28815