Back to search

University of Iceland

„Barnasöngur bros og kæti vekur“ : raddsvið og söngfærni tæplega tveggja til þriggja ára íslenskra barna

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar var raddsvið og söngfærni íslenskra barna á aldrinum tæplega tveggja ára til þriggja ára. Þar sem ekki er mikið vitað um söngþroska barna getur þessi rannsókn verið liður í því að varpa skýrara ljósi á hann. Þessi þekking þarf að vera til staðar svo hægt sé að efla og ýta undir þá þætti sem hafa jákvæð áhrif á þroska barnsins hvort sem litið er til vitsmunaþroska, málþroska eða söngþroska. Tölvupóstur var sendur á 218 foreldra með beiðni um að fá sendar upptökur/myndbönd af börnum þeirra undir þriggja ára að syngja. 86 upptökur bárust en að lokum voru 36 upptökur valdar úr með það að markmiði að tryggja sem jafnasta aldursdreifingu í rannsókninni. Leitast var við að halda inni sem flestum upptökum af drengjum þar sem færri upptökur bárust með söng drengja. Aðaláhersla var lögð á að greina hversu stórt raddsvið börnin notuðu við söng en einnig söngfærni þeirra. Raddsviðið var greint með forritinu Melodyne og hljómborði og ákveðið matsskema var notað til að greina söngfærni þeirra. Þátttakendur voru 30 börn, 21 stúlka og 9 drengir. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera íslensk og voru búsett á Íslandi þegar upptökurnar fóru fram. Niðurstöðurnar sýndu að lítill munur var á raddsviði milli yngri og eldri barna á aldursbilinu sem skoðað var. Báðir hópar voru með sama meðaltal á lægsta og hæsta sungnum tóni. Meðalraddsviðið sem börnin notuð við að syngja söngva var níu hálftónar. Raddsviðið þeirra var því stærra en niðurstöður fyrri rannsókna sýna. Greining á söngfærni barnanna benti til þess að flest þeirra sungu ófullkomna laglínu en útlína laglínunnar var rétt og jafnvel einhver tónbil. Textaframburðurinn varð skýrari og meira jafnvægi var milli texta og laglínu eftir því sem þau urðu eldri. Söngfærni þeirra er í samræmi við það sem eldri rannsóknir hafa komist að.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnhildur Vilhjálmsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28503
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28503

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnhildur Vilhjálmsdóttir 1984-. „Barnasöngur bros og kæti vekur“ : raddsvið og söngfærni tæplega tveggja til þriggja ára íslenskra barna. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28503