Back to search

University of Iceland

Barneignarþjónusta og aðgangur að sólahringsþjónustu á landsbyggðinni, með áherslu á Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Abstract

dc:description.abstract

Árið 2014 voru allar heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi að undanskildu Sjúkrahúsinu á Akureyri sameinaðar undir einum hatti, Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Heilbrigðisumdæmið nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri en um 400 km skilja að þessa tvo staði. Aðeins einn fæðingastaður er á upptökusvæði stofnunarinnar, á Akureyri. Áður fyrr voru fæðingar á mun fleiri stöðum og þær síðustu á Sauðárkróki og Húsavík lokuðu á árabilinu 2005¬¬–2009.Tilgangur þessa verkefnis er að skoða hvernig skipulagi barneignarþjónustu í dreifbýli er háttað, koma fram með hugmyndir um breytingar á þjónustusvæði Heilbrigðisstofnunar Norðurlands í samræmi við þjónustuþarfir kvenna, barna og fjölskyldna þeirra.Fræðileg samantekt sýnir fram á mikilvægi samfelldrar þjónustu frá sömu ljósmóður eða litlum hópi ljósmæðra fyrir upplifun af öryggi og útkomu fæðinga. Í íslenskum lögum er kveðið á um að heilbrigðisþjónustu skuli veita á viðeigandi þjónustustigi, að heilsugæsla skuli að öllu jöfnu vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga og að í mæðravernd eigi að veita þjónustu á viðeigandi og öruggan hátt. Mikilvægt er skoða hvernig og hvort skipulag barneignarþjónustu samræmist íslenskum heilbrigðislögum og hvernig hægt sé að efla og bæta þjónustu við barnshafandi konur á landsbyggðinni sem næst heimabyggð, allan sólarhringinn. Eins óútreiknanlegt og barneignarferlið er getur konan og fjölskylda hennar þurft á þjónustu að halda hvort sem er að nóttu eða degi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiða Jóhannsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28326
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28326

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiða Jóhannsdóttir 1988-. Barneignarþjónusta og aðgangur að sólahringsþjónustu á landsbyggðinni, með áherslu á Heilbrigðisstofnun Norðurlands. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28326