Back to search

University of Iceland

Öryggi barna í innkaupakerrum: Áhrifarík inngrip til að forðast slys

Abstract

dc:description.abstract

Öryggi barna ætti að skipta foreldra miklu máli. Því getur fylgt hætta að börnum sé leyft að standa eða sitjae í innkaupakerrum þar sem vörur eiga að vera. Árlega slasast um 100 börn á Íslandi við að detta úr innkaupakerrum. Markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvort hægt væri að hafa áhfrif á þá hegðun að foreldrar settu börn sín ofan í innkaupakerrur með því að koma fyrir spjaldi með mynd í innkaupakerrum fjögurra verslana á höfuðborgarsvæðinu. Þrír matsmenn töldu tíðni markhegðunar og var samræmi milli þeirra 0,99. Margfalt grunnskeiðssnið með fráhvarfi var notað til að meta áhrif íhlutunnar í verslununum fjórum. Helstu niðurstöður voru að með spjaldinu var hægt að hafa mikil áhrif á það hvort foreldrar leyfðu börnum sínum að sitja í innkaupakerrum og minnka þar með þau slys sem af því geta hlotist. Ef barn er sett í þann hluta innkaupakerru sem ætlaður er fyrir vörur eykst áhætta á slysum vegan falls úr innkaupakerrunni. Meiðslin sem geta hlotist af falli úr innkaupakerru eru sambærileg meiðslum sem fullvaxinn karlmaður getur orðið fyrir við fall af bílskúrsþaki (Storgaard, 2005a). Eiríksson og Sigurðardóttir (óútgefið) sýndu fram á að inngrip byggt á sjónrænu áreiti gæti minnkað líkur á því að börn væru sett ofan í innkaupakerrur. Frá framkvæmd upprunalegu rannsóknarinnar árið 2010 hafa stærri rannsóknir verið framkvæmdar með það markmið að mæla langtíma áhrif upprunalega inngripsins og nýs en svipaðs inngrips; kortleggja hversu algeng hegðunin er, auk þess að bera kennsl á virka þátt inngripsins. Niðurstöður hafa sýnt að virkni upprunalega inngripsins hélst enn eftir 1, 2 og 3 ár. Rannsóknirnar sýndu einnig að hegðunin er algeng og þá sérstaklega í lágvöruverðs verslunum. Niðurstöður sýndu einnig að notkun táknmyndar (pictogram) í stað ljósmyndar var næstum jafn áhrifaríkt. Samsett inngrip (texti og mynd) virkaði betur en inngrip með mynd eða táknmynd. Texta inngrip hafði næstum jafn mikil áhrif og samsett inngrip. Kerfisbundin endurtekt rannsóknarinnar í öðrum samfélögum er þó nauðsynleg áður en hægt er að mæla með inngripum á stærri grundvelli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árni Þór Eiríksson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28297
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28297

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árni Þór Eiríksson 1985-. Öryggi barna í innkaupakerrum: Áhrifarík inngrip til að forðast slys. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28297