Back to search

University of Iceland

Áhrif slökunarmeðferðar á líðan krabbameinssjúklinga: megindleg, afturvirk rannsókn

Abstract

dc:description.abstract

Slökunarmeðferð hefur verið í boði fyrir krabbameinssjúklinga á göngudeild Landspítala frá árinu 1998, og veitt af hjúkrunarfræðingi. Árið 2007 var gerð eigindleg rannsókn á upplifun þeirra krabbameinssjúklinga sem þáðu slökunarmeðferð, og sýndi hún fram á mikinn ávinning í formi betri líðanar samhliða krabbameinsmeðferð. Mikilvægt er að afla frekari upplýsinga um áhrif slökunarmeðferða fyrir þennan sjúklingahóp. Rannsóknin er megindleg, afturvirk, lýsandi samanburðarrannsókn og var úrtakið þægindaúrtak 251 krabbameinssjúklings. Tilgangurinn með rannsókninni er að kanna hvaða áhrif slökunarmeðferð hefur á líðan krabbameinssjúklinga. Rannsóknarspurningar til hliðsjónar voru: Eru verkir, þreyta, ógleði, þunglyndi, kvíði, syfja, matarlyst, vanlíðan og mæði, mælt með ESAS mælitækinu, marktækt minni hjá krabbameinssjúklingum eftir veitta slökunarmeðferð? Er marktækur munur á styrkleika og tíðni einkennanna eftir kynjum? Er marktæk fylgni innbyrðis á milli einkenna? Er marktækur munur á styrkleika og tíðni einkenna tengt aldri? Niðurstöður sýndu að eftir veitta slökunarmeðferð dró marktækt úr styrk allra einkenna á ESAS skalanum. Ekki reyndist marktækur munur á styrkleika eða tíðni einkenna eftir kynjum eða aldri og ekki var marktæk fylgni innbyrðis á milli einkenna. Samkvæmt þessum niðurstöðum má álykta að slökunarmeðferð sé ákjósanlegt meðferðarform við meðhöndlun einkenna hjá krabbameinssjúklingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Björg Sigurjónsdóttir 1980-
  • Katrín Hilmarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2756
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2756

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björg Sigurjónsdóttir 1980-; Katrín Hilmarsdóttir 1984-. Áhrif slökunarmeðferðar á líðan krabbameinssjúklinga: megindleg, afturvirk rannsókn. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2756