Back to search

University of Iceland

Þriðji póllinn bráðnar: Viðbrögð tíbetskra kvennasamtaka við hnattrænni hlýnun

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta byggir á etnógrafískri vettvangsrannsókn sem gerð var í höfuðstöðvum Samtaka tíbetskra kvenna í bænum Dharamsala í Norður-Indlandi. Um er að ræða kvennasamtök útlægra kvenna af tíbetskum uppruna sem vinna mikið starf í þágu umhverfis- og náttúruverndar, og eiga aðildarsamtök víða um heim. Voru störf þeirra rannsökuð sem dæmi um viðbrögð fólks við loftslagsbreytingum á svæðum þar sem sýnt þykir að hnattræn hlýnun geti haft miklar neikvæðar afleiðingar. Markmiðið var að varpa ljósi á skilning, upplifun og sýn meðlima samtakanna á vanda hnattrænnar hlýnunar og skoða hvaða þættir hefðu mótandi áhrif á viðbrögð þeirra og störf innan málaflokksins. Tekin voru viðtöl við átta konur innan samtakanna og aðferðum grundaðrar kenningar og orðræðugreiningar beitt til greiningar, ásamt kenningum um hnattvæðingu og þverþjóðleika. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að allar konurnar töldu sig hafa upplifað veðrabreytingar sem þær álitu afleiðingar hnattrænnar hlýnunar, og var upplifun þeirra í takt við það sem vísindamenn hafa spáð fyrir um áhrif loftslagsbreytinga á samfélög víða um heim. Frelsispólitík útlagasamfélags Tíbeta var miðlæg í orðræðu samtakanna jafnt sem kvennanna sem rætt var við, og hafði mótandi áhrif bæði á starfsemi samtakanna og í lífi kvennanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27435
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27435

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir 1973-. Þriðji póllinn bráðnar: Viðbrögð tíbetskra kvennasamtaka við hnattrænni hlýnun. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27435