Back to search

University of Iceland

Áhrif ferðamanna á samfélög. Völd, peningar og ferðamennska

Abstract

dc:description.abstract

Á stuttum tíma hefur ferðamennska aukist gífurlega og þjónusta við ferðamenn orðin umfangsmikil og margvíð. Nú til dags er erfitt að skilgreina hvað telst til þessarar þjónustu þar sem áhrif hennar greinast víðsvegar um samfélagið. Til að skilgreina hana þarf að skoða samskipti allra þátttakenda, bæði þeirra sem hafa beinna hagsmuna að gæta en einnig þeirra sem verða fyrir óbeinum áhrifum. Ferðaþjónustan veltir gríðarlegu fjármagni sem skiptist afar ójafnt milli þessa þátttakenda. Hér verður fjallað um peninga og völd í ferðaþjónustu. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að þeir sem bera mest úr býtum eru þeir sem eiga þjónustufyrirtækin en fórnarlömb græðgislegrar markaðssetningar geta skaðast illa til frambúðar. Í þessu samhengi verður sérstaklega tekið Mursi ættbálkinn í Eþíópíu sem dæmi og stuðst við etnógrafískar rannsóknir David Turtons og Tamas Régi sem gerðar voru á mismunandi tíma. Saman gefa þær mynd af áhrifum ferðamanna á ættbálkinn í tímans rás. Mursi ættbálkurinn hefur þurft að láta í minni pokann vegna þess gullgrafaraæðis sem heltekur ferðaþjónustuna. Ferðamenn borga fúlgur fjár til að berja þá augum en peningarnir skila sér ekki nema að litlu leyti til heimamanna. Alls konar milliliðir taka sinn toll og það litla sem skilar sér í vasa Mursi fólksins er það sem ferðamenn láta af hendi rakna þegar á áfangastað er komið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hera Pálmadóttir Thorlacius 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27415
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27415

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hera Pálmadóttir Thorlacius 1989-. Áhrif ferðamanna á samfélög. Völd, peningar og ferðamennska. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27415