Back to search

University of Iceland

Áhrif ófrjósemis á parasambandið

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari B.a.-ritgerð, sem er 12 eininga lokaverkefni í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, verður fjallað um ófrjósemi og áhrif þess á parasambandið. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) er ófrjósemi heilbrigðisvandamál sem fyrirfinnst um víðan heim. 10-15% para glíma við ófrjósemi sem orsakast jafnt hjá báðum kynjum. Ófrjósemi getur haft andleg-, líkamleg-, félagsleg-, samfélagsleg- og fjárhagsleg áhrif á einstaklinga og pör. Barnleysi getur reynst pörum afar þungbært þar sem mörg pör hafa tekið þá ákvörðun að eignast barn þegar ófrjósemin uppgötvast. Markmið ritgerðarinnar er að varpa sýn á áhrif ófrjósemis á pör en jafnframt verður gerð grein fyrir orsökum þess, tíðni og úrræðum við ófrjósemi. Úrvinnsla para á erfiðleikum tengdum ófrjósemi verður einnig skoðuð og hvernig fagleg ráðgjöf getur borið árangur og stuðlað að velferð para. Niðurstaða þessarar heimildaritgerðar er sú að ófrjósemi hefur bæði jákvæð og neikvæð áhrif á parasambandið. Eigi reynslan að vera jákvæð er lykilatriði að parið sýni samstöðu og vinni sameiginlega að þessu erfiða verkefni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Júlía Guðrún Björnsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27377
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27377

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Júlía Guðrún Björnsdóttir 1989-. Áhrif ófrjósemis á parasambandið. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27377