Abstract
dc:description.abstractEinkamálaréttarfar fjallar um þau tilteknu mál innan réttarkerfisins, sem fjalla um málefni einstaklinga og skiptir í þeim skilningi ekki máli hvort viðkomandi sé lögpersóna ef reglur einkamálaréttarfars eru á annað borð uppfylltar. Það er að miklu leyti í höndum aðila slíkra mála í hvaða farveg þau verða lögð, enda gera reglur einkamálaréttarfars ráð fyrir því að aðilar málsins hagi málatilbúnaði sínum eins og þeim kjósa sér, öfugt við sakamálaréttarfar. Þrátt fyrir að aðilar máls hafi lausar hendur varðandi ýmislegt í málatilbúnaðinum líkt og hvort mál skuli rekið, hverjir séu aðilar máls, hvaða kröfur skuli lagðar fram, hvaða sönnunargögnum og röksemdum skuli byggt á, þá eru nokkrar grundvallar meginreglur einkamálaréttarfars sem ekki er haldbært að líta hjá. Í ritgerðinni verður fjallað um aðild að dómsmálum og sérstaklega um þær reglur sem fjalla um samaðild. Þó svo margar reglur í einkamálaréttarfari séu frávíkjanlegar eru reglur um samaðild það ekki. Þungamiðja þessarar ritgerðar er slík samaðild til sóknar og varnar og verða rakin gaumgæfilega þau atriði er að henni snúa líkt og meginreglur einkamálaréttarfars, kröfugerð í slíkum málum, aðal- og aukakröfur, sameiginleg aðild og dómaframkvæmd. Í ritgerðinni verður leitast við að svara því hvernig kröfugerðin skuli úr garði gerð þegar um samaðild er að ræða. Í öðrum kafla ritgerðarinnar er fjallað um meginreglur einkamálaréttarfars og þá helst þær sem snúa að samaðild. Í þriðja kafla verður fjalað um meðferð einkamála almennt, aðild að dómsmálum og sakarefnið. Í fjórða kafla verður fjallað um kröfugerðina sjálfa, aðal og varakröfur auk annara atriða sem snúa að kröfugerðinni. Í fimmta kafla verður fjallað um meginefni ritgerðarinnar, samaðild og þær reglur sem henni fylgja auk þess sem fjallað verður um aðilasamlag, réttargæsluaðild og meðalgönguaðild. Í sjötta og síðasta kaflanum verða niðurstöður ritgerðarinnar dregnar saman. Í ritgerðinni verður fyrst og fremst stuðst við rit Markúsar Sigurbjörnssonar og Kristínar Benediktsdóttur, Einkamálaréttarfar en einnig verður stuðst við grein Sigurðar Tómasar Magnússonar um samaðild. Auk þess verður ítarlega rakin dómaframkvæmd þar sem hún á við.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hildur Hilmarsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/27000
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/27000