University of Iceland
Áhrif markmiðssetningar og aðferðafræðinnar The 4 Disciplines of Execution
Abstract
dc:description.abstractBæði einstaklingar og fyrirtæki setja sér markmið til að reyna að ná ákveðnum áföngum eða áorka einhverju til styttri eða lengri tíma. Einstaklingar gera þetta bæði í starfi og einkalífi. Flest fyrirtæki setja sér eitt aðalmarkmið, sem er yfirleitt að skapa virði og auka framleiðni. Markmið rannsóknarinnar var að skoða markmiðssetningu og aðferðafræðina The 4 Disciplines of Executions. Sú aðferð hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi og nokkur fyrirtæki hafa tileinkað sér aðferðafræðina. Markmiðssetning er mikilvægur hlekkur þegar kemur að því að innleiða nýja stefnu og bæta frammistöðu starfsmanna. Skoðaðir verða sérstaklega þættir eins og hvatning, streita, endurgjöf og þekking á 4DX og hvort að þessir þættir stuðli enn frekar að bættri frammistöðu starfsmanna. Allt eru þetta mikilvægi hlekkir í lífskeðju fyrirtækja og til að auka arðsemi sem og til að ná samkeppnisforskoti þurfa stjórnendur stöðugt að huga að markmiðasetningu í stefnumótun sinni Rannsóknin var megindleg og var sendur út spurningalisti til þeirra fyrirtækja sem innleitt hafa aðferðafræðina hérlendis. Þátttakendur voru starfsmenn sem unnið hafa eftir The 4 Disciplines of Execution og vinna markvist að markmiðum sínum daglega. Heildarniðurstaða rannsóknarinnar er sú að með 4DX má auka starfsánægju og bæta frammistöðu starfsmanna. Aðferðafræðin stuðlar að raunhæfri markmiðssetningum sem næst með tilheyrandi ávinningi fyrir alla hlutaðeigandi án þess að valda aukinni streitu meðal starfsmanna. Samspil hvatningar, endurgjafar og þekkingar á aðferðafræðinni leiðir til jákvæðra áhrifa fyrir einstaka starfsmenn sem og skipulagsheildina, þ.e. bæta frammistöðu þeirra til bæði lengri og skemmri tíma litið, sem einstaklinga og skipulagsheildar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðný Maja Riba 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26578
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26578