Abstract
dc:description.abstractRannsóknin miðar að því að skoða samfélagsábyrgð meðal raforkuflutningsfyrirtækja með tilliti til þeirra hvata og ávinnings sem þau telja sig hafa af stefnu í samfélagsábyrgð og innleiðingu hennar, með tilliti til alþjóðlegra vísa, staðla og sáttmála. Til grundvallar rannsókninni lágu raforkuflutningsfyrirtæki Íslands (Landsnet), Noregs (Statnett) og Finnlands (Fingrid). Lagt var upp með fjórar rannsóknarspurningar. Til að svara þeim var stuðst við fyrirliggjandi gögn auk þess sem spurningalistar lagðir fyrir hjá Statnett og Fingrid og tekin voru viðtöl við stjórnendur og starfsfólk hjá Landsneti. Einnig var litið til reynslu, upplifunar og óformlegra samtala rannsakanda af þátttökuathugunum innan Landsnets, en rannsóknin var að hluta unnin innan og í samstarfi við fyrirtækið. Því er um að ræða tilviks- og þátttökurannsókn sem byggir á eigindlegum rannsóknaraðferðum. Niðurstöður benda til þess að samfélagsábyrgð samræmist persónulegum gildum stjórnenda og starfsmanna og að þeir telji samfélagsábyrgð vera nýtt viðmið í stjórn fyrirtækja sem þeim beri fagleg og siðferðileg skylda til að uppfylla. Öll fyrirtækin töldu að samfélagsábyrgð skilaði gagnkvæmum ávinningi fyrir fyrirtækin, samfélagið og umhverfið. Væntingar um ávinning fyrir fyrirtækið eða viðmælendur persónulega í starfi voru þó ekki áberandi í tilsvörum viðmælanda og voru ekki drifkraftur stefnumótunar á sviði samfélagsábyrgðar. Norrænu samanburðarfyrirtækin styðjast við alþjóðlega staðla og viðmið þegar kemur að samfélagsábyrgð og upplýsingagjöf þar að lútandi en ekki hefur verið tekin ákvörðum um slíkt hjá Landsneti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásta Mekkín Pálsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26567
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26567