University of Iceland
Greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga. Samanburður við Norðurlöndin
Abstract
dc:description.abstractKrabbamein er sífellt að verða algengara vandamál í heiminum í dag en að meðaltali greinist einn af hverjum þremur einstaklingum með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. Gríðarlegur kostnaður getur fylgt því að greinast með krabbamein. Greiða þarf fyrir alla þá heilbrigðisþjónustu sem sjúklingurinn en að auki bætist við kostnaður sem hann verður fyrir á borð við vinnutap. Greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga er mikið í umræðunni og taldi höfundur það mikilvægt málefni til að kanna betur. En greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga hér á landi er einmitt viðfangsefni þessarar ritgerðar og hún borin saman við greiðsluþátttöku krabbameinssjúklinga á hinum Norðurlöndunum. Greiðsluþátttaka krabbameinssjúklinga getur verið mjög misjöfn eftir hvers kyns krabbamein sjúklingurinn greinist með en flestir sjúklingar fá samt sömu eða svipaða þjónustu. Í fyrstu þarf krabbameinið að greinast og getur það tekið nokkra læknistíma og rannsóknir áður en byrjað er að meðhöndla sjúkdóminn. Því má sjá að kostnaðurinn safnast hratt saman. Þegar búið að er að greina sjúklinginn með krabbamein þarf að sinna vandanum og getur margt komið til greina, til dæmis skurðaðgerð, geislameðferð eða lyfjameðferð. Farið verður yfir hvað sjúklingar á Íslandi þurfa að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hér á landi miða við sambærilega þjónustu á hinum Norðurlöndunum, ásamt því að fara yfir fjárveitingar hverrar þjóðar til heilbrigðismála og hvernig greiðsluþátttökukerfi er uppsett á Íslandi miða við í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Ísland ver minnsta hlutfallinu af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála miða við hin Norðurlöndin og ljóst er að hið opinbera á hinum Norðurlöndunum tekur meiri þátt í útgjöldum vegna heilbrigðisþjónustu og lyfjakostnaðar en það sem sést hér á landi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- María Björk Hauksdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26537
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26537