Back to search

University of Iceland

Háskóli í fremstu röð? - Stoðþjónusta rannsóknaverkefna við Háskóla Íslands í evrópsku samhengi

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessa verkefnis er stoðþjónusta við rannsóknaverkefni við evrópska háskóla. Stoðþjónusta við rannsóknaverkefni við Háskóla Íslands er grunnlína verkefnisins og er rannsóknin hagnýt á þann hátt að niðurstöður hennar leggja til breytingar á þeirri þjónustu sem veitt er við Háskóla Íslands. Meginrannsóknaspurning verkefnisins snýr að því hvort háskólar í Evrópu skipuleggja stoðþjónustu við rannsóknaverkefni styrkt af Evrópusambandinu á miðlægan eða dreifstýrðan hátt. Gerð er tilgáta um hvernig breytingar á stoðþjónustu við Háskóla Íslands gætu bætt árangur Háskólans þegar kemur að sókn í erlenda samkeppnissjóði og rekstri styrktra verkefna. Kenningar Mintzberg um skipulagsheildir og kenningar um stofnanabreytingar mynda kenningaramma verkefnisins. Nítján háskólastofnanir eru bornar saman og er þeim skipt í þrjá flokka: Norrænir háskólar, háskólar á svipuðum slóðum og Háskóli Íslands á lista Times Higher Education, og fremstu háskólar Evrópu samkvæmt sama lista og árangri úr rannsóknaáætlun ESB. Verkefnið notar opinberar upplýsingar útgefnar af háskólunum og opinber gögn gefin út af Evrópusambandinu. Helstu niðurstaða verkefnisins er að almennt skipuleggja háskólastofnanir í Evrópu stoðþjónustu sína við rannsóknaverkefni styrkt af Evrópusambandinu miðlægt, sem næst forystu stofnunarinnar og er Háskóli Íslands frábrugðinn að því leyti að engin miðlæg eining ber ábyrgð á þjónustunni. Lagt er til að Háskóli Íslands setji sér stefnu varðandi þetta málefni, skilgreini ábyrgð og verkaskiptingu, auki sérhæfingu starfsfólks og teymisvinnu þvert á fræðasvið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Úlfar Gíslason 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26501
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26501

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Úlfar Gíslason 1979-. Háskóli í fremstu röð? - Stoðþjónusta rannsóknaverkefna við Háskóla Íslands í evrópsku samhengi. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26501