Back to search

University of Iceland

Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka: Áskoranir samfara innleiðingu og útfærslu Evróputilskipana á Íslandi með norrænu sjónarhorni

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um aðgerðir gegn peningaþvætti í íslenskum lögum. Í henni er rannsakað hvernig eftirliti með peningaþvætti er háttað á Íslandi, rýnt í væntanlegar breytingar með tilkomu fjórðu peningaþvættistilskipunar Evrópusambandsins 2015/849/ESB og aðgerðir gegn peningaþvætti í Danmörku, Noregi og Svíþjóð bornar saman. Fyrst er hugtakið peningaþvætti krufið, það sett í sögulegt samhengi og farið yfir þrjú stig peningaþvættisferlisins. Því næst er rýnt í helstu aðferðir sem tíðkast við peningaþvætti. Þá er fjallað um alþjóðaskuldbindingar á sviði varna gegn peningaþvætti og farið yfir núgildandi lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64/2006 og þróun þeirrar löggjafar. Að því loknu er hugað að tilkynningaskyldum aðilum, hverjir aðilarnir eru og hverjar skyldur þeirra eru samkvæmt peningaþvættislögum. Starfsemi Íslensku peningaþvættisskrifstofunnar er því næst skoðuð og farið yfir hverjir sinna eftirliti með tilkynningaskyldum aðilum. Fyrirhugaðar breytingar með fjórðu peningaþvættistilskipun Evrópusambandsins eru skoðaðar. Að svo búnu er stiklað á stóru um hvernig aðgerðum gegn peningaþvætti er háttað í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og gerður samanburður. Að lokum eru dregnar ályktanir um það hvort aðgerðir gegn peningaþvætti á Íslandi séu fullnægjandi og hvort Ísland standist samanburð við hin Norðurlöndin.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagmar Sigurðardóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26492
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26492

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagmar Sigurðardóttir 1985-. Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka: Áskoranir samfara innleiðingu og útfærslu Evróputilskipana á Íslandi með norrænu sjónarhorni. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26492