Back to search

University of Iceland

QuizUp á umrótartímum: Agile aðferðafræðin í útfærslu íslensks nýsköpunarfyrirtækis

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknarverkefni þetta var framkvæmt í samstarfi við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið QuizUp og markmið þess var að kanna viðhorf starfsmanna til útfærslu Agile aðferðarfræðinnar sem notuð er innan fyrirtækisins. Að auki kannaði rannsakandi starfsánægju og viðhorf starfsmanna til starfs síns og vinnuumhverfis en miklar skipulagsbreytingar áttu sér stað á meðan á framkvæmd rannsóknarinnar stóð. Í rannsókninni var notast við bæði megindlega- og eigindlega aðferðafræði en rannsakandi taldi að blanda beggja aðferða myndi ýta undir nákvæmari og skýrari niðurstöður. Megindlega aðferðafræðin fól í sér spurningalista sem rannsakandi hannaði og var sendur á alla starfsmenn QuizUp. Eigindlega aðferðafræðin fól í sér að framkvæmd voru tíu viðtöl við starfsmenn fyrirtækisins sem valdir voru af handahófi. Einnig var þátttökuathugun framkvæmd innan fyrirtæksins. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þrátt fyrir skiptar skoðanir á ýmsum eiginleikum aðferðafræðinnar séu starfsmenn QuizUp almennt ánægðir með útfærslu Agile innan fyrirtækisins og telji ávinning hennar greinilegan. Út frá niðurstöðunum má einnig draga þá ályktun að Agile aðferðafræðin henti starfsháttum og andrúmslofti fyrirtækisins vel. Að sama skapi benda niðurstöðurnar til þess að viðhorf starfsmanna til starfs síns og vinnuumhverfis sé að mestu jákvætt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Benediktsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26412
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26412

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Benediktsdóttir 1989-. QuizUp á umrótartímum: Agile aðferðafræðin í útfærslu íslensks nýsköpunarfyrirtækis. 2016. http://hdl.handle.net/1946/26412