Back to search

University of Iceland

Skólinn sem velferðarstofnun "Það vantar spýtur og það vantar sög"

Abstract

dc:description.abstract

Grunnskólar á Íslandi eru velferðarstofnanir í þeim skilningi að innan þeirra á að veita öllum nemendum menntun við hæfi og koma til móts við ólíka nemendur með ólíkar þarfir. Hlutverk kennara er að veita þessum fjölbreytta hópi sem er innan grunnskólanna menntun sem hentar hverjum og einum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða upplifun og reynslu kennarar í grunnskólum á Íslandi hafa á stuðningi og þjónustu við nemendur sem glíma við námserfiðleika með velferð nemenda í huga. Þess er vænst að niðurstöðurnar nýtist á gagnlegan hátt við stefnumótun og skipulagningu innan skólakerfisins. Viðmælendur í þessari rannsókn voru þrettán fagmenntaðir starfsmenn úr grunnskólum í Reykjavík. Rannsóknin var unnin úr frá eigindlegri aðferð og tekin voru rýnihópaviðtöl. Helstu niðurstöður eru þær að sá mannauður sem er innan grunnskólanna er dýrmætur og flest starfsfólk skólanna er tilbúið að leggja mikið á sig við að þjónusta nemendur með námserfiðleika. Niðurstöður sýna jafnframt að skapa þarf fleiri úrræði þannig að þjónustan geti verið einstaklingsmiðaðri. Menntastefnan á Íslandi byggir meðal annars á stefnunni um skóla án aðgreiningar og því er að er að finna innan grunnskólanna allan þann fjölbreytileika sem fyrirfinnst í samfélaginu. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar má ætla að auka þurfi fjármagn til skólanna til að þeir geti unnið út frá gildandi menntastefnu og komið til móts við þarfir allra nemenda. Lykilorð: Námserfiðleikar, sérkennsla, stuðningur, seigla, álag, mannauður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnrún Theodórsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26403
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26403

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnrún Theodórsdóttir 1970-. Skólinn sem velferðarstofnun "Það vantar spýtur og það vantar sög". 2016. http://hdl.handle.net/1946/26403