Back to search

University of Iceland

Lífsstílstengdir heilsufarsþættir eftir krabbameinsmeðferð

Abstract

dc:description.abstract

Sífellt fleiri lifa lengi eftir meðferð vegna krabbameins. Þekking á langtímaáhrifum krabbameinsmeðferða á þrek, holdafar og heilsutengd lífsgæði fólks er mikilvæg fyrir þennan vaxandi samfélagshóp. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt. Annarsvegar að mæla þrek, holdafar, heilsutengd lífsgæði og persónuleika D fólks sem hefur lokið við læknismeðferð vegna krabbameina undanfarin tíu ár og hinsvegar að athuga hvort þrek hafi fylgni við holdafar og heilsutengd lífsgæði hjá sama hópi. Áttatíu þátttakendur (25 – 77 ára) af báðum kynjum, sem voru í sjúkdómshléi frá, eða álitnir læknaðir af krabbameini svöruðu spurningalistum um heilsutengd lífsgæði (SF-36v2 og EQ-5D-3L), persónuleika D (DS14), heilsufar, lífsstíl og krabbameinsmeðferð. Blóðþrýstingur, líkamsþyngdarstuðull, fituprósenta, þrek metið með sex mínútna gönguprófi (6MWT) og ummál mittis og mjaðma voru mæld. Notast var við SPSS til að fá lýsandi tölfræði og við útreikning á fylgnistuðlum. Tveir af hverjum þremur þátttakendum voru með einhverja þætti holdafars yfir viðmiðunarmörkum. Rúmlega helmingur þátttakenda var yfir kjörþyngd, 66,3% voru með ummál mittis yfir viðmiðunarmörkum, 45,0% voru með hlutfall mittis og mjaðma yfir viðmiðunarmörkum. Meðal gengin vegalengd í 6MWT var 634 m +/- 83 m. Marktæk fylgni (p<0,05) mældist á milli 6MWT og holdafars ásamt flestra þátta heilsutengdra lífsgæða. Aðeins 13,8% þátttakenda mældust með persónuleika D. Það er áhyggjuefni að um tveir af hverjum þremur þátttakendum mældust með holdafar yfir viðmiðunarmörkum. Þrek, metið með 6MWT, getur gefið vísbendingu um heilsutengd lífsgæð og holdafar fólks eftir krabbameinsmeðferð og styður rannsóknin notkun á 6MWT í klínísku starfi þar sem gengin vegalengd hefur fylgni við áðurnefnda þætti. Gagnlegt væri að rannsaka frekar hvort íhlutun sem eykur þrek bætir einnig holdafar og heilsutengd lífsgæði fólks eftir krabbameinsmeðferð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • G. Haukur Guðmundsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26011
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26011

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

G. Haukur Guðmundsson 1981-. Lífsstílstengdir heilsufarsþættir eftir krabbameinsmeðferð. 2016. http://hdl.handle.net/1946/26011