Back to search

University of Iceland

Þetta er ungt og leikur sér : notkun leikja og spila í stærðfræðinámi í leikskóla

Abstract

dc:description.abstract

Þetta er lokaverkefni okkar í leikskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verkefnið okkar er tvískipt, annarsvegar hugmyndabanki í formi vefsíðu og hinsvegar fræðileg greinargerð. Viðfangsefni okkar er hvernig hægt sé að nota leiki og spil til þess að kenna stærðfræði í leikskóla. Í greinagerðinni fjöllum við um tvær kenningar, hugsmíðahyggju og félagslega hugsmíðahyggju, við fjöllum um leikinn og mikilvægi hans, almennt er fjallað um stærðfræði og hugtök tengd henni. Hlutverki kennarans eru gerð skil ásamt því að mikilvægi góðs námsumhverfis er ítrekað. Hugmyndabankinn er samansafn af leikjum og spilum sem öll eiga það sameiginlegt að stuðla að auknum stærðfræðiskilningi hjá börnum. Inn á heimasíðunni er að finna lýsingar á leikjunum og spilunum ásamt helstu upplýsingum um þau. Vonumst við til þess að heimasíðan og greinargerðin okkar geti nýst starfsfólki í leikskóla til að vinna markvissara með stærðfræðina. Okkur finnst þetta verkefni vera þörf viðbót við námsefni sem þegar er til þar sem stærðfræðinám í leikskóla virðist oftar en ekki vera óformlegt og ómarkvisst þrátt fyrir að vera til staðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Sóley Ósk Eyjólfsdóttir 1990-
  • Elísabet Katla Eyþórsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25898
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25898

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sóley Ósk Eyjólfsdóttir 1990-; Elísabet Katla Eyþórsdóttir 1989-. Þetta er ungt og leikur sér : notkun leikja og spila í stærðfræðinámi í leikskóla. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25898