Back to search

University of Iceland

,,Þau eru ekkert að spá í að vera tilbúin fyrir samkynhneigt par'' : reynsla samkynhneigðra foreldra af leikskólum

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lokaverkefni höfundar til BA-prófs í Uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Tilgangur verkefnis er að fá sýn á reynslu samkynhneigðra foreldra af leikskólum barna sinna. Tekin voru fjögur viðtöl við fjögur samkynhneigð pör með barn/börn. Tvö af pörunum voru karlkyns og tvö kvenkyns. Í viðtalinu var rætt um viðhorf þeirra til leikskóla, stofnanabundinna fordóma og gagnkynhneigðarhyggju (heterosexisma), ásamt því að því er velt upp hvaða fræðslu börnin þeirra fá á leikskólanum um ólík fjölskylduform. Viðtölin voru afrituð og þemagreind en þau þemu sem komu í ljós voru; fáfræði en góðar móttökur, fordómar og erfiðar spurningar, fræðsla og væntingar. Niðurstöður sýndu meðal annars að mikilvægt er að starfsmenn leikskóla fái viðeigandi fræðslu til þess að jafnt sé komið fram við alla óháð fjölskylduformi. Jafnframt kom í ljós að öllum starfsmönnum ætti að vera skylt að fræða börn um ólík fjölskylduform, hvort sem börn samkynhneigðra séu á leikskólanum eður ei. Einnig sýna niðurstöður að leikskólar eru komnir mislangt með að móta stefnu og framfylgja henni, þegar kemur að fjölmenningu og ólíkum fjölskylduformum. Áhugavert er að sjá að viðmælendur í rannsókninni telja sig hafa upplifað litla sem enga fordóma, hvorki frá samfélaginu né leikskólum barna sinna. Hins vegar telja þeir að mikið sé um fáfræði og almennt þekkingarleysi í garð samkynhneigðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Katrín Hauksdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25869
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25869

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katrín Hauksdóttir 1991-. ,,Þau eru ekkert að spá í að vera tilbúin fyrir samkynhneigt par'' : reynsla samkynhneigðra foreldra af leikskólum. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25869